05.06.2016 13:02Úrtakan fyrir LM á Hólum
Eins og hér hefur komið fram þá fer úrtaka Neista fyrir Landsmót fram á Hólum 11. og 12. júní. Við skáningu sem fer fram á http://skraning.sportfengur.com/Skraningkort.aspx?mode=add kemur fram upphæð sem þarf að borga fyrir hverja grein og/eða hverja skráningu, 5.000 í A og B flokk en 3.000 í allar aðrar greinar. Það þarf að vera búið að leggja inn áður en mótið hefst. Skráningu lýkur þriðjudaginn 7. júní kl 23:59.
Þeir sem ætla að taka þátt þurfa að vera búnir að greiða félagsgjöld Neista, en greiðsluseðill þar að lútandi var sendur til félagsmanna í maí. Þeir sem ekki eru búnir að greiða félagsgjöldin fá ekki þátttökurétt.
Skrifað af Selmu 03.06.2016 09:12Úrtaka fyrir LM 2016 á Hólum; Neisti, Skagfirðingur, Þytur og Glæsir
Þyts og Glæsis verður haldin á Hólum 11.júní og 12.júní nk. Keppt verður í A-flokki og B-flokki gæðinga, barna,- unglinga,- og ungmennaflokki. Tölti T1, 100 metra skeiði,150 metra skeiði og 250 metra skeiði. Boðið verður upp á tvöfalda umferð í öllum flokkum nema tölti
Ef skráning er góð er möguleiki að fyrri tveir skeiðsprettirnir í básaskeiðinu fara fram föstudagskvöldið 10.júní og seinni tveir á sunnudaginn 12.júní. Skráning fer fram á http://skraning.sportfengur.com/Skraningkort.aspx?mode=add Skráningu lýkur þriðjudaginn 7. júní kl 23:59 ATH! Ekki verður tekið við skráningum eftir að skráningafrestur rennur út. Skráning telst ekki gild fyrr en kvittum hefur borist á netfangið iþ[email protected] með skýringu fyrir hvern greitt er. Nánari upplýsingar berast á https://skagfirdingur.is/ þegar nær dregur Íþrótta og mótanefnd Skagfirðings Skrifað af Selmu 30.05.2016 13:14Karlareið NeistaKarlareið Hestmannafélagsins Neista verður farin laugardaginn 4.júní nk. Mæting er í Arnargerði við Reiðhöllina, en lagt verður af stað kl.16.00. Riðinn verður hringur frá Arnargerði, upp Svínvetningabraut að Köldukinn og þaðan með Blöndubökkum heim. Að lokinni ferð verður grill og fjör í reiðhöllinni. Skráningar eru hjá Magnúsi Ólafssyni í síma 898-5695 og eða í netfangið [email protected]. Nefndin.
Skrifað af HBE 29.05.2016 08:33Sólon frá Skáney á Þingeyrum
Sólon frá Skáney verður til afnota í löngu gangmáli á Þingeyrum á vegum Hrossaræktarsamtaka Vestur-Hún og Austur-Hún. Tollurinn kostar 115.000 m/VSK fyrir félagsmenn og 125.000 m/VSK fyrir utanfélagsmenn. Innifalið í verðinu er hagagjald og ein sónarskoðun. Sólon kemur í kringum 20.júní. Nánari upplýsingar hjá Magnúsi í Steinnesi í síma: 897 3486. Sólon á 16 afkvæmi í 1.verðlaunum og hæst dæmda afkvæmi hans er Skýr frá Skálakoti en hann hefur hlotið 8,48 fyrir sköpulag, 8,85 fyrir kosti og aðaleinkunn 8,70. Sólon er undan Spegli frá Sauðárkróki og Nútíð frá Skáney, hann er með 119 í kynbótamati
Dómsorð:
Skrifað af Selmu 22.05.2016 09:11Þátttökuréttur á LM2016
Skrifað af Selmu 18.05.2016 22:33Karlareið NeistaKarlareið Hestamannafélagsins Neista verður farin laugardaginn 4.júní nk. Nánar auglýst síðar !!! Karlar takið daginn frá !! Skrifað af HBE 17.05.2016 23:05Tilkynning frá Skotfélaginu Markviss
Samkvæmt lögum um vernd, friðun og veiðar á villtum fuglum og spendýrum er veiðimönnum hreindýra og leiðsögumönnum þeirra skylt að standast verklegt skotpróf áður en haldið er til hreindýraveiða. Taka þarf prófið fyrir 1. júlí. Skotfélagið Markviss verður með verkleg skotpróf dagana: 22. maí frá kl. 10:00 Prófstaður er „skeiðvöllurinn í Kúagirðingunni“ í landi Blönduóss.
Skrifað af Selmu 09.05.2016 19:40Almennur félagsfundur
Almennur félagsfundur verður haldinn í Reiðhöllinni 10. maí kl. 20.30. Stjórnin Skrifað af Selmu 03.05.2016 23:09Hnakkakynning
Hnakkakynning verður haldið í anddyri reiðhallarinnar á Blönduósi föstudaginn 6. maí kl.16-18. Skrifað af Selmu 01.05.2016 10:00Úrtaka fyrir landsmótÚrtaka fyrir landsmót verður á Hólum 11.-12. júní. Hún verður haldin í samstarfi með Þyt og Skagfirðingi. Nánar auglýst þegar nær dregur. Mótanefnd
Skrifað af Selma 01.05.2016 08:34UppskeruhátiðinMiðvikudaginn 27. apríl var uppskeruhátíð hjá krökkunum úr barna-og unglingastarfi vetrarins.
Æskulýðsnefnd. Skrifað af Selma 11.04.2016 10:05Karlatölt Norðurlands 2016
Karlatölt Norðurlands verður haldið miðvikudagskvöldið 20.04. nk. í Þytsheimum og hefst kl. 19.00. Keppt verður í þremur flokkum, minna vanir (í keppni), meira vanir (í keppni) og opinn flokkur. Minna vanir keppa í T7 en í hinum tveimur flokkunum verður keppt í T3. Skráningargjaldið er 2.500 og verður að greiða inn á reikning 0159-15-200343 kt. 550180-0499 um leið og skráð er. Keppendur skrá sig í skráningakerfi Sportfengs http://skraning.sportfengur.com/Skraningkort.aspx?mode=add .
Skráningafrestur er til miðnættis laugardagsins 16. apríl.
Nánar auglýst þegar nær dregur móti.
Mótanefnd Karlatölts
Skrifað af Selmu 07.04.2016 22:03Úrslit úr tölti og skeiðiSíðasta mót vetrarins var í kvöld og tókst með ágætum. Úrslit urðu þessi: 1. Aron Freyr Sigurðssonog Hlynur frá Haukatungu 5,8 / 6,3
Opinn flokkur: 1. Hörður Ríkharðsson og Djarfur frá Helguhvammi II 6,2 / 6,8
Skeið: Unglingaflokkur: Opinn flokkur: Skrifað af Selmu 07.04.2016 17:36Ráslisti
Unglingar:
Opinn flokkur:
Skeið:
Skrifað af Selmu 04.04.2016 12:19Lokamót vetrarins - Tölt og skeiðLokamót vetrarins verður fimmtudagskvöldið 7 apríl. og hefst keppni kl. 19.00. Skráning er á netfang Neista [email protected] fyrir kl. 22:00 miðvikudagskvöldið 6. apríl. Fram þarf að koma nafn og kennitala knapa, flokkur, hestur og IS númer og í hvaða flokki knapi ætlar að keppa. Keppt er í 2 flokkum: Unglingaflokkur, 16 ára og yngri Skráningargjöld eru 2.000 kr. í opnum flokki og 1.500 kr. í unglingaflokki.
Mótanefnd Skrifað af Selmu Flettingar í dag: 3046 Gestir í dag: 330 Flettingar í gær: 1234 Gestir í gær: 398 Samtals flettingar: 446526 Samtals gestir: 53561 Tölur uppfærðar: 9.5.2024 18:57:56 |
Vafraðu umEldra efni
Um hestamannafélagið Neista Nafn: Hestamannafélagið NeistiTölvupóstfang: [email protected]Afmælisdagur: 1943Heimilisfang: 540 BlönduósStaðsetning: BlönduósUm: Hestamannafélagið Neisti hefur sitt aðsetur á Blönduósi, en er félag hestamanna í Austur-Húnavatnssýslu.Tenglarclockhere
|
© 2024 123.is | Nýskrá 123.is síðu | Stjórnkerfi 123.is