10.01.2012 10:25Meistaradeild Norðurlands 2012, KS-Deildin
Úrtaka fer fram 25.janúar í Svaðastaðahöllinni. Og hefst kl: 20:00 Þar sem tveir keppendur hafa afboðað þátttöku vegna flutnings af svæðinu, áskilur stjórn MN sér rétt til að úthluta tveimur sætum til viðbótar ef viðunandi árangur í úrtöku næst. Skráning fyrir föstudagskvöldið 20.janúar Stjórn MN Skrifað af selma 05.01.2012 13:28Námskeiðin að hefjastMinnum á að verkleg kennsla í knapamerkjum hefst í næstu viku. Mánudag verður kn 1 krakkar hjá Ragnhildi. Þriðjudag verða kn 2 krakkar og kn. 1 fullorðnir hjá Barböru Fimmtudag verða kn 3 allir hjá Hafdísi. Minnum líka á reiðnámskeið fyrir börn, bæði byrjendur og lengra komna sem byrja í síðustu viku í janúar. Þeir sem hafa hug á þeim námskeiðum vinsamlegast skráið ykkur á netfang Neista fyrir 15. janúar. Kennari verður Ragnhildur Haraldsdóttir. Minnum líka á: Birna Tryggvadóttir kemur og verður með námskeið 27.-29. janúar bæði almennt fyrir börn, unglinga og fullorðna og einnig keppnisnámskeið fyrir börn, unglinga og fullorðna. Hún tekur einnig í einstaklingskennslu ef þess er óskað. Skráning er á netfang Neista fyrir 15. janúar. Einnig má fá uppslýsingar hjá Selmu í síma 661 9961. Skrifað af selma 02.01.2012 09:48Upplýsingar um kynbótasýningar 2012Á fundi Fagráðs í hrossarækt þann 16. desember sl. var sýningaráætlun kynbótadóma fyrir árið 2012 lögð fram, sýningargjöld og einkunnarlágmörk kynbótahrossa á Landsmóti ákveðin. Samkvæmt því munu sýningargjöld verða 18.500 kr. fyrir fullan dóma, en 13.500 kr fyrir sköpulags- eða reiðdóm. Einnig voru einkunnarlágmörk kynbótahrossa á Landsmóti ákveðin og verða þau eftirfarandi: Stóðhestar:
7 vetra og eldri 8,35
6 vetra 8,30
5 vetra 8,15
4 vetra 8,00
Hryssur
7 vetra og eldri 8,25
6 vetra 8,20
5 vetra 8,05
4 vetra 7,90
Þá var eftirfarandi sýningaráætlun ársins lögð fram til samþykktar:
Skrifað af selma 23.12.2011 21:52Gleðileg jólHestamannafélagið Neisti óskar félagsmönnum, Húnvetningum sem og öðrum landsmönnum gleðilegra jóla og farsældar á nýju ári. Þökkum stuðning, gott samstarf og Skrifað af selma 15.12.2011 08:16Spennandi vetur framundanÞað styttist í nýtt, spennandi og viðburðaríkt ár hjá Hestamannafélaginu Neista. Námskeiðin verða öll á sínum stað og 1. mót vetrarins verður 5. febrúar þar sem krakkarnir ætla að hittast og keppa í tölti. Verkleg kennsla í knapamerkjum hefst í 2. viku í janúar og ættu þeir sem voru í bóklegu námskeiði nú í haust að vera búnir að fá upplýsingar um það. Kennarar eru Barbara Dittmar og Hafdís Arnardóttir. Eins og undanfarin ár verður boðið uppá reiðnámskeið fyrir börn, bæði byrjendur og lengra komna og byrja þau í síðustu viku janúar. Þeir sem hafa hug á þeim námskeiðum vinsamlegast skráið ykkur á netfang Neista fyrir 15. janúar. Kennari verður Ragnhildur Haraldsdóttir. Birna Tryggvadóttir kemur og verður með námskeið 27.-29. janúar bæði almennt fyrir börn, unglinga og fullorðna og einnig keppnisnámskeið fyrir börn, unglinga og fullorðna. Hún tekur einnig í einstaklingskennslu ef þess er óskað. Skráning er á netfang Neista fyrir 15. janúar. Einnig má fá uppslýsingar hjá Selmu í síma 661 9961. Fyrsta mót í Húnvetnsku liðakeppninni verður á Hvammstanga 10. febrúar og keppt veður í fjórgangi. Þangað ætlum við Neistafélagar auðvitað að mæta. Fyrir keppni verður boðið uppá bóklegar og verklegar æfingar og verður það auglýst síðar. Skrifað af selma 14.12.2011 08:55Jólaleikur LandsmótsÓ já, jólastemningin fer að ná hámarki hér á skrifstofu Landsmóts og hér eru mandarínur og piparkökur í öll mál. Við viljum endilega hvetja ykkur til að taka þátt í jólaleiknum okkar og freista gæfunnar um leið og miði á LM 2012 er keyptur á forsöluverði. Veglegir vinningar bíða í pottinum en allir seldir miðar fram að jólum fara sjálfkrafa í pottinn. Athugið að á forsöluverði kostar vikupassi aðeins 10.000 krónur með LH/BÍ afslætti og N1 korts afslætti, en fullt verð er 18.000 krónur. Á Þorláksmessu förum við í sparifötin, fáum okkur smákökur, malt & appelsín og drögum út heppna vinningshafa. Það er til mikils að vinna því meðal vinninga eru flugmiðar til Evrópu með Icelandair, gjafabréf í Kringluna, leikhúsmiðar, inneign hjá N1, Mountain Horse úlpa frá Líflandi, hótelgisting í 2 nætur á Hilton Reykjavík Nordica og endurgreiðsla á keyptum landsmótsmiðum. Potturinn bíður því stútfullur af glæsilegum vinningum sem væri ekki amalegt að fá sem auka jólagjafir þetta árið. Smelltu þér á miðasöluvef landsmóts svo þú eigir möguleika á vinningi! Gleðileg jól! --------------------///--------------------- DVD diskur frá LM 2011 Já það er margt að gerast hjá Landsmóti. Á skrifstofu Landsmóts er hægt að kaupa gjafabréf fyrir miða á Landsmót sem er vitanlega tilvalið í jólapakka hestamannsins! Hafið samband í síma 514 4030 eða með tölvupósti á netfangið [email protected] Að lokum minnir Landsmót á DVD diskana frá mótinu í sumar á Vindheimamelum sem nú fara að koma úr framleiðslu. Gefinn verður út annars vegar DVD með hápunktum Landsmóts og hins vegar kynbótahross á Landsmóti. Þetta er gríðarlega mikið efni, eða rúmlega átta klukkustundir í það heila og frábær heimild um gott mót norður í Skagafirði í sumar. Hápunktarnir munu kosta kr. 5.000 og kynbótadiskurinn kr. 8.000. Þarna er komin önnur hugmynd að frábærri gjöf í jólapakka hestamannsins! Vonast er til að hægt verði að dreifa diskunum í verslanir á föstudaginn 16.desember en einnig er hægt að panta diskinn á skrifstofu LH/Landsmóts í síma 514 4030 og fá hann sendan í póstkröfu eða greiða með kreditkorti í gegnum síma. Diskurinn verður m.a. fáanlegur í eftirtöldum verslunum: Lífland Lynghálsi og Akureyri, Baldvin & Þorvaldur Selfossi, Knapinn Borgarnesi, Skagfirðingabúð Sauðárkróki, KS Varmahlíð og Fákasport Akureyri. Skrifað af selma 11.12.2011 10:47Almennur félagsfundurAlmennur félagsfundur hestamannafélagsins Neista verður haldinn miðvikudaginn 14.des kl. 20.30 í Reiðhöllinni Arnargerði. Rætt verður um dagskrá vetrarins, þáttöku og undirbúning í viðburðum vetrarins og almennt um félagsstarf Neista. Vonumst til að sjá sem flesta. Stjórnin Skrifað af selma 01.12.2011 20:31Vöru- og sölukynning í Þytsheimum, HvammstangaÞann 3. desember nk. verða verslanirnar Kidka og Knapinn Borgarnesi með kynningu og sölu á vörum sínum í Þytsheimum frá kl. 13:00 - 19:00. Einnig verður kynning á spæni frá Skógarvinnslunni og dagatal hestamannafélagsins til sölu frá kl. 13:00 - 16:00 . Notið ykkur þetta tækifæri til að versla í heimabyggð. Heitt á könnunni :) Fræðslunefnd Þyts Skrifað af selma 29.11.2011 20:25Verslunin Hestar og menn í HúnaveriHaldinn verður markaður í Húnaveri næstkomandi laugardag, 3. desember, milli klukkan 13 og 17. Í boði verður fatnaður, hestavörur, ýmis handverk, brauð og kökur, bæði notað og nýtt. Kvenfélag Bólstaðarhlíðarhrepps verður með kaffi og með því á staðnum á góðu verði. Á markaðnum verður ýmislegt á boðstólum, t.d. vörur frá fyrirtækjunum Hestum og mönnum, Töfrakonum, Sveitabakaríi, Silfur-Hlöðunni og glerlistakonan Anna Gunnarsdóttir verður með vörur sínar til sölu, ásamt mörgum öðrum söluaðilum. Eitthvað fyrir alla og í jólagjafir. Allflestir söluaðilar taka ekki kort.Skrifað af selma 21.11.2011 22:49UppskeruhátiðinUppskeruhátíð húnvetnskra bænda og hestamanna sem var sl. laugardaskvöld tókst afskaplega vel í alla staði vel. Eins og fyrri ár voru veitt verðlaun fyrir hesta, kýr og kindur..... Þessi maður.... Ólafur Magnússon, var knapi árins 2011 hjá hestamannafélaginu Neista. Hann var alltaf á ferðinni og gerði það afar gott...... KS-deildin 4. sæti í fjórgangi 2. sæti í tölti 4. sæti í heildarstigum. Húnvetnska liðakeppnin 1. sæti í tölti Ís-landsmót á Svínavatni Félagsmót Neista og úrtaka Innilega til hamingju með flottan árangur. Að venju veittu Samtök Hrossabænda í A.-Hún ræktendum í félaginu viðurkenningar fyrir hæst dæmdu kynbótahrossin. Viðurkenningar kynbótahrossa: Hryssur 4 vetra 5 vetra 6 vetra Hildur frá Blönduósi F. Adam frá Ásmundarstöðum. M. Hlökk frá Hólum B: 8,03 H: 7,99 A: 8,01 Ræktendur: Selma Svavarsdóttir og Tryggvi Björnsson Eigandi: Ingolf Nordal Sýnandi: Mette Mannseth 7 vetra og eldri
Stóðhestar 4 vetra 5 vetra 6 vetra 7 vetra og eldri
Sölufélagsbikarinn fær hæst dæmda hryssa á héraðsýningu í Húnaþingi í eigu heimamanns. Búnaðarbankabikarinn fær hæst dæmdi stóðhestur á héraðssýningu í Húnaþingi í eigu heimamanns.
Fengsbikarinn - bikar sem gefinn var til minningar um Guðmund Sigfússon frá Eiríksstöðum og veittur er hæst dæmda kynbótahrossi í eigu heimamanns. Kompás frá Skagaströnd Bikar til minningar um Magnús Blöndal frá Skagaströnd Gefinn af Sveini Inga Grímssyni og fjölskyldu til minningar um Magnús Blöndal. Er hann veittur hæst dæmda 4 vetra stóðhesti úr Austur-Húnavatnssýslu. Viti frá Kagaðarhóli Ræktunarbú 2011 : Hólabak í Húnavatnshreppi Á árinu 2011 voru 2 hross áberandi frá Hólabaki. Til hamingju Hólabak. Skrifað af selma 16.11.2011 14:24Minnum á .....Uppskeruhátíð búgreinafélaganna í A.-Hún. og hestamannafélagsins Neista verður haldin laugardaginn 19. nóvember í Félagsheimilinu á Blönduósi. Vinsamlegast tilkynnið þátttöku fyrir seinni fréttir 17. nóvember í síma: 897 9138 Ólöf og Sigurður 861 7440 Brynjólfur og Jóhanna 895 9671 Lalli og Rakel 693 7911 Ragnhildur og Víðir Skrifað af selma 15.11.2011 10:34Viðburðir 2012Viðburðadagatalið 2012 er komið inn. Eins og sjá má verður mikið um að vera í vetur. Neisti fyrirhugar að vera með 3 mót í Reiðhöllinni og ísmót á Hnjúkatjörn eins og fyrri ár. Ís-landsmót á Svínavatni er á sínum stað svo og Karlareiðin. USAH verður 100 ára 31. mars 2012 og verður afmælishátíð þann dag. Einhverjar uppákomur eiga eftir að koma inná dagatalið og verður þeim bætt þar inná svo og ef breytingar verða á dagsetningum móta. Skrifað af selma 10.11.2011 14:44UppskeruhátíðinUppskeruhátíð búgreinafélaganna í A.-Hún. og hestamannafélagsins Neista verður haldin laugardaginn 19. nóvember í Félagsheimilinu á Blönduósi. Húsið opnað kl. 20:00 með fordrykk í boði SAH Afurða. Glæsilegur þriggja rétta kvöldverður. Stórhljómsveit Dúa og Stulla heldur uppi stuðinu fram eftir nóttu. Miðaverð kr. 5.500 Forsala aðgöngumiða verður á veitingastaðnum Pottinum á Blönduósi. Upplýsingar í símum: 897 9138 Ólöf og Sigurður 861 7440 Brynjólfur og Jóhanna 895 9671 Lalli og Rakel 693 7911 Ragnhildur og Víðir Skrifað af selma 09.11.2011 09:16Fundur um Húnvetnsku liðakeppnina 2012Fundur um Húnvetnsku liðakeppnina verður haldinn í Félagshúsi Þyts 2012 mánudaginn 14. nóvember kl. 20.30. Fyrirhugaðar dagssetningar fyrir mótaröðina 2012 eru: 10. febrúar - Fjórgangur 25. febrúar - Smali og skeið á Blönduósi 16. mars - Fimmgangur og tölt unglinga 14. apríl - Tölt Einnig mun fræðslunefnd Þyts fara yfir vetrarstarfið. Mótanefnd Húnvetnsku liðakeppninnar og fræðslunefnd Þyts. Skrifað af selma 07.11.2011 18:45UppskeruhátíðUppskeruhátíð búgreinasambanda A-Hún og hestamannafélagsins Neista verður haldin í félagsheimilinu á Blönduósi laugardaginn 19. nóvember. Þriggja rétta veislumatur, skemmtiatriði og dansleikur fram eftir nóttu. Nánar auglýst síðar. Nefndin Skrifað af selma Flettingar í dag: 560 Gestir í dag: 185 Flettingar í gær: 1234 Gestir í gær: 398 Samtals flettingar: 444040 Samtals gestir: 53416 Tölur uppfærðar: 9.5.2024 08:23:52 |
Vafraðu umEldra efni
Um hestamannafélagið Neista Nafn: Hestamannafélagið NeistiTölvupóstfang: [email protected]Afmælisdagur: 1943Heimilisfang: 540 BlönduósStaðsetning: BlönduósUm: Hestamannafélagið Neisti hefur sitt aðsetur á Blönduósi, en er félag hestamanna í Austur-Húnavatnssýslu.Tenglarclockhere
|
© 2024 123.is | Nýskrá 123.is síðu | Stjórnkerfi 123.is