19.04.2013 08:47Ráslisti Grunnskólamóts
Skrifað af selma 13.04.2013 09:30Grunnskólamót á Sauðárkróki - lokamót !Grunnskólamót hestamannafélaganna á Norðurlandi vestra verður haldið
Grunnskólamótinu sem halda átti sunnudaginn 21. apríl í reiðhöllinni Svaðastaðir, hefur verið flýtt vegna annarra viðburða sem koma inn á sunnudaginn og laugardaginn. Ákveðið hefur verið að halda það föstudaginn 19. apríl og byrja kl. 18:00. Þetta er þriðja og síðasta mótið í vetur og því spennandi að sjá hvaða skóli fer heim með bikarinn til varðveislu næsta árið!
Keppt verður í : Fegurðarreið 1. - 3. bekkur -- Tvígangur 4. - 7. bekkur - Þrígangur 4. - 7. bekkur - Fjórgangur 8. - 10. bekkur - Skeið 8. - 10. bekkur
Skráningar þurfa að berast fyrir miðnætti á miðvikudaginn 17. apríl. Við skráningu þarf að koma fram nafn keppanda - bekkur - skóli - nafn hests, uppruni og litur - upp á hvora hönd er riðið. Skráningar sendist á [email protected]
Skráningargjald er 1000 krónur fyrir fyrstu skráningu og 500 krónur fyrir næstu skráningar og skal greiða á mótsstað (með peningum - kort ekki tekin) áður en mót hefst.
Úr reglum keppninnar : Fegurðarreið 1. - 3. bekkur. Þar eru riðnir 2 hringir og látið fara fallega dæmt skal eftir stjórnun og þokka. 2 - 3 keppendur inná í einu. Tvígangur 4. - 7. bekkur. Riðnir tveir hringir á annað hvort brokki eða tölti og fet ½ hringur. Áseta og stjórnun dæmd. Þrígangur 4. - 7. bekkur. Riðið einn hringur brokk, einn hringur tölt og fet ½ hringur. Áseta og stjórnun dæmd. Fjórgangur 8. - 10. bekkur. Venjuleg íþróttakeppni, riðnir fjórir og hálfur hringur. Einn hringur hægt tölt, einn hringur fegurðar tölt, ½ hringur fet , einn hringur brokk og einn hringur stökk. Skeið 8. - 10. bekkur mega keppa í skeiði og skal tímataka vera samkvæmt venju á hverjum stað. Fara skal 2 spretti og betri tíminn gildir. xx Keppni í skeiði er með fyrirvara um veður og aðstæður á hverjum stað. * Gult spjald má sýna ef knapi sýnir grófa reiðmennsku og jafnvel víkja keppanda úr sýningu. ----- 3. Keppandi má koma með hest hvaðan sem er, hesturinn/hesteigandi þarf ekki að vera í hestamannafélagi viðkomandi skólahverfis. 4. Heimilt er að sami hestur sé skráður í 2 greinar. 5. Foreldrar mega ekki vera inn á keppnisvellinum meðan á keppni stendur 6. Keppendur í tví- og þrígangi í 4. - 7. bekk, verða að velja annað hvort tvígang eða þrígang að keppa í. Óheimilt að sami keppandi keppi í báðum greinum. 7. Í tölti, tví-, þrí- og fjórgangi mega keppendur keppa á fleiri en einum hesti, en í úrslitum verður einungis einn hestur frá hverjum knapa. 8. Ef tveir eru jafnir í 5. og 6. sæti skulu báðir mæta í úrslit og verðlauna bæði sætin sem 5. sæti. 9. Járningar, 10 mm skeifur og 250 gr. hlífar eða 8 mm og botnar. 10. Í smala er ekki leyft að ríða við stangir, annars gilda almennar íþróttakeppnisreglur. 11. Í Tölti 4. - 7. og 8. - 10. bekk og Fjórgangi 8. - 10. bekk skulu riðin B og A úrslit ef keppendur eru fleiri en 16. Skrifað af selma 12.04.2013 08:40Afmælissýning hestamannafélagsins NeistaSunnudaginn 28. apríl kl. 14:00 verður afmælissýning hestamannafélagsins Neista í reiðhöllinni Arnargerði en félagið var stofnað árið 1943 í Dalsmynni. Fjölbreytt sýning þar sem fram koma knapar frá 2 ára til 67 ára.
Nánar auglýst þegar nær líður. Stjórnin. Skrifað af selma 10.04.2013 22:01Lokastaðan í Mótaröð Neista
Skrifað af HBE 10.04.2013 11:13Frá mótanefndFrá mótanefnd Hestamannafélagsins Neista
Mótanefnd Hestamannafélagsins Neista vill þakka öllum þeim sem komu að mótum vetrarins með einum eða öðrum hætti. Þátttaka var mjög góð á vel flestum mótunum svo eftir var tekið um land allt, og sýnir að áhugi er hér mikill á svæðinu fyrir hestamennsku og keppni á hestum. Við viljum á meðan að veturinn er enn í fersku minni, óska eftir því við félagsmenn að þeir komi með tillögur varðandi framtíð mótaraðarinnar og eða tilhögun móta því að enn er mótaröðin í mótun. Teljum við að allir hafi nokkuð gaman að þessu. Hægt er að senda tillögur og eða bara vangaveltur á netfangið [email protected]. Hér meðfylgjandi eru nokkrar tillögur sem að borist hafa okkur: · Mótin verði eftirfarandi, T7 í byrjun vetrar, fjórgangur, ístölt, fimmgangur og svo tölt sem lokamót. · Stigagjöf verði sú sama fyrir öll mótin ( sem að við teljum víst að verði) · Skráningargjöld verði hækkuð í 2.000 krónur og þá verði hætt að rukka inn aðgangseyrir til að hvetja áhorfendur til að mæta · Samfara mótaröðinni verði einnig liðakeppni sem gæti t.d. verið með svipuðum hætti og í húnv.liðakeppninni þar sem að einn knapi úr hverjum flokki myndi eitt lið. · Við birtingu úrslita á fjölmiðlum verði einnig gefnar upp niðurstöðutölur úr úrslitunum t.d. 5,8 / 6,3 eða álíka. Komið hefur fram ábending frá hrossaræktendum og tamningafólki að það vilji fá tölur birtar af sínum hrossum svo að hægt sé að sýna fram á keppnisárángur. · Tillögur hafa líka komið fram að hafa keppni í Smala. · Veitingasala verði með sama hætti ef vilji er fyrir því meðal tíundubekkinga þar sem að reynsla af henni sé góð
Skrifað af HBE 07.04.2013 23:14Úrslit í fimmgangi og töltiSíðasta mót í Mótaröð Neista var í kvöld en keppt var í fimmgangi og tölti. Góð þátttaka var á öll mótin og var Mótaröðin vel heppnuð. Bestu þakkir til allra keppenda, starfsfólks og áhorfenda. Úrslit í kvöld urðu þessi: Fimmgangur: 1. Tryggvi Björnsson og Sóldís frá Kommu 2. Sonja Noack og Bú-Álfur frá Vakurstöðum 3. Jón Gíslason og Hvinur frá Efri-Rauðalæk 4. Þórólfur Óli Aadnegard og Miran frá Kommu 5. Jóhanna Stella Jóhannsdóttir og Hnakkur frá Reykjum Unglingaflokkur: 1. Kristófer Már Tryggvason og Áfangi frá Sauðanesi 2. Sigurður Bjarni Aadnegard og Þokki frá Blönduósi 3. Ásdís Brynja Jónsdóttir og Eyvör frá Eyri 4. Lilja Maria Suska og Hamur frá Hamrahlíð 5. Sigurgeir Njáll Bergþórsson og Gletta frá Blönduósi Áhugamannaflokkur: 1. Magnús Ólafsson og Gáski frá Sveinsstöðum 2. Selma Svavarsdóttir og Hátíð frá Blönduósi 3.-4. Þórólfur Óli Aadnegard og Prinsessa frá Blönduósi 3.-4. Höskuldur B. Erlingsson og Börkur frá Akurgerði 5. Sonja Suska og Feykir frá Stekkjardal 6. Jón Gíslason og Hvinur frá Efri-Rauðalæk Opinn flokkur: 1. Ragnhildur Haraldsdóttir og Börkur frá Brekkukoti 2. Tryggvi Björnsson og Kjói frá Steinnesi 3. Hjörtur Karl Einarsson og Syrpa frá Hnjúkahlíð 4. Ægir Sigurgeirsson og Gítar frá Stekkjardal 5. Víðir Kristjánsson og Hatta frá Akureyri Í einstaklingskeppninni urðu úrslit þessi: Unglingaflokkur 1. Sigurður Bjarni Aadnegard 2. Sólrún Tinna Grímsdóttir 3. Lilja Maria Suska Áhugamannaflokkur: 1. Magnús Ólafsson 2. Þórólfur Óli Aadnegard 3. Jón Gíslason Opinn flokkur: 1. Hjörtur Karl Einarsson 2. Ragnhildur Haraldsdóttir 3. Ægir Sigurgeirsson Sigurbjörg Þórunn Jónsdóttir gaf á öll mótin 1. verðlaun í öllum flokkum. Það voru hestastyttur sem hún hannaði og tálgaði. Hún gaf þær í tilfefni 70 ára afmælis Neista í minningu föður hennar Jóns Jónssonar frá Stóradal. Færum við henni bestu þakkir fyrir. Skrifað af selma 06.04.2013 20:41Tölt og fimmgangur - ráslistiRásröðin í tölti og fimmgangi 7. arpil kl. 19.00 Skráningargjöld má greiða áður en mót hefst inná reikning Neista 0307-26-055624 kt. 480269-7139 en það má líka greiða á staðnum (ekki er tekið við greiðslukortum). Aðgangseyrir er 500 kr. en frítt fyrir 12 ára og yngri (ekki er tekið við greiðslukortum). Prógrammið í fimmgangi er: tölt, brokk, fet, stökk og skeið. Stjórnað af þul.
Skrifað af selma 04.04.2013 08:34Lokamót Mótaraðar Neista - tölt og fimmgangurLokamót Mótaraðar Neista en það verður sunnudaginn 7. apríl kl. 19.00 í Reiðhöllinni Arnargerði. Keppt verður í tölti og fimmgangi. Í tölti er keppt í unglingaflokki (16 ára og yngri), áhugamannaflokki og í opnum flokki. "Keppt verður í fimmgangi allra flokka það er að segja að allir flokkar keppa saman og eru í pottinum 5,4,3,2 og 1 stig fyrir þá 5 fyrstu sætin. Þeir sem þessi stig hljóta taka þau svo með sér inn í sína flokka. Fimmgangskeppnin verður með hefðbundnu sniði og stýrt af þul. Skeiðið verður riðið í gegnum höllina, tveir sprettir. Að því loknu verður keppt í hefðbundnu tölti í öllum flokkum þ.e.a.s. hægt tölt, hraðabreytingar og fegurðartölt. Þetta er lokamót mótaraðar Hestamannafélagsins Neista og vonar mótanefnd að um góða þátttöku verði að ræða. Þetta kvöld ráðast úrslitin í heildarstigakeppni mótaraðarinnar og verða veitt verðlaun til þriggja stigahæstu knapa í hverjum flokki." Skráningargjald er kr.1.500 fyrir fyrstu skráningu og 500 krónur eftir það. Í unglingaflokki 500 kr. hver skráning. Skráning sendist á netfang [email protected] fyrir miðnætti föstudagskvölds 5. apríl. Fram þarf að koma knapi og hestur og upp á hvaða hönd skal riðið sem og í hvaða flokki er keppt. Skráningargjöld má greiða inná reikning Neista 0307-26-055624 kt. 480269-7139 áður en mót hefst en það má líka greiða á staðnum (ekki er tekið við greiðslukortum). Eins og áður sér 10. bekkur um sjoppuna, þar verður hægt að fá kaffi, gos og eitthvað með því. Mótanefnd. Skrifað af selma 01.04.2013 22:10Lokamót Mótaraðar Neista - tölt og fimmgangurVegna ýmissa óviðráðanlegra aðstæðna er breyting á áður auglýstu lokamóti Mótaraðar Neista en það verður sunnudaginn 7. apríl kl. 19.00 í Reiðhöllinni Arnargerði. Keppt verður í tölti og fimmgangi. Nánar auglýst síðar í vikunni. Mótanefnd Skrifað af selma 23.03.2013 01:42Staðan í Mótaröð NeistaJæja, hér kemur staðan og er spennan í hámarki !
Skrifað af HBE 21.03.2013 23:10Tölt - úrslitÚrslit í töltinu. Unglingar: 1. Sólrún Tinna Grímsdóttir og Gjá frá Hæli 2. Sigurður Bjarni Aadnegard og Prinsessa frá Blönduósi 3. Ásdís Freyja Grímsdóttir og Hespa frá Reykjum 4. Ásdís Brynja Jónsdóttir og Ör frá Hvammi 5. Lara Margrét Jónsdóttir og Eyvör frá Eyri Áhugamannaflokkur: 1. Höskuldur B. Erlingsson og Börkur frá Akurgerði 2. Magnús Ólafsson og Dynur frá Sveinsstöðum 3. Kristján Þorbjörnsson og Píla frá Sveinsstöðum 4. Jón Gíslason og Hvinur frá Efri-Rauðalæk 5. Þórólfur Óli Aadnegard og Miran frá Kommu 6. Birna Olivia Agnarsdóttir og Kynning frá Dalbæ Opinn flokkur: 1. Hjörtur Karl Einarsson og Syrpa frá Hnjúkahlíð 2. Maríanna Gestsdóttir og Sóldögg frá Kaldárbakka 3. Þóranna Másdóttir og Ganti frá Dalbæ 4. Ægir Sigurgeirsson og Gítar frá Stekkjardal 5. Ragnhildur Haraldsdóttir og Hatta frá Akureyri 6. Eline Schrijver og Auðlind frá Kommu Skrifað af selma 20.03.2013 21:02Tölt - ráslistinnRásröðin í töltinu 21. mars kl. 20.00 Skráningargjöld, kr. 1.500 fyrir fyrstu skráningu og 500 krónur eftir það og fyrir unglinga er 500 fyrir hverja skráningu, má greiða áður en mót hefst inná reikning Neista 0307-26-055624 kt. 480269-7139 en það má líka greiða á staðnum (ekki er tekið við greiðslukortum). Aðgangseyrir er 500 kr. en frítt fyrir 12 ára og yngri (ekki er tekið við greiðslukortum).
Skrifað af selma 18.03.2013 19:00Staðan í mótaröð Neista eftir ístöltið
18.03.2013 14:06Mótaröð Neista - TöltOpið töltmót verður haldið fimmtudagskvöldið 21. mars kl.20.00 í Reiðhöllinni Arnargerði. Keppt verður í unglingaflokki (16 ára og yngri), áhugamannaflokki og í opnum flokki. Skráningargjald er kr.1.500 fyrir fyrstu skráningu og 500 krónur eftir það. Skráning sendist á netfang [email protected] fyrir miðnætti þriðjudagskvöld 19. mars. Fram þarf að koma knapi og hestur og upp á hvaða hönd skal riðið sem og í hvaða flokki er keppt. Skráningargjöld má greiða inná reikning Neista 0307-26-055624 kt. 480269-7139 áður en mót hefst en það má líka greiða á staðnum (ekki er tekið við greiðslukortum). Mótanefnd Skrifað af selma 18.03.2013 00:05Úrslit vetrarleika Hestamannafélagsins Neista
Börn og unglingar 16 ára og yngri: 1. Sigurður Aadnegard og Prinsessa frá Blönduósi 2. Lilja Maria Suska og Hamur frá Hamrahlíð 3. Sólrún Tinna Grímsdóttir og Gjá frá Hæli 4. Ásdís Brynja Jónsdóttir, Eyvör frá Eyri 5. Ásdís Freyja Grímsd. og Hrókur frá Laugabóli Áhugamenn:
1. Þórólfur Óli Aadnegard og Þokki frá Blönduósi 2. Magnús Ólafsson og Dynur frá Sveinsstöðum 3. Jón Gíslason, Hvínur frá Efri Rauðalæk 4. Kristján Þorbjörnsson og Píla frá Sveinsstöðum 5. Hákon Ari Grímsson og Hnakkur frá Reykjum Opinn flokkur: 1. Pétur Sæmundsson og Prímus frá Brekkukoti 2. Ægir Sigurgeirsson og Gítar frá Stekkjardal 3. J.Víðir Kristjánsson og Börkur frá Brekkukoti 4. Ragnhildur Haraldsdóttir og Hatta frá Akureyri 5. Hjörtur Karl Einarsson og Syrpa frá Hnjúkahlíð Bæjarkeppnin: 1. Lara Margrét Jónsdóttir og Eyvör frá Eyri - kepptu fyrir Reyki 2. Sigurður Aadnegard og Prinsessa frá Blönduósi - kepptu fyrir Stóra - dal 3. Ásdís Brynja Jónsdóttir og Hvinur frá Efri-Rauðalæk - kepptu fyrir Húnsstaði 4. Ægir Sigurgeirsson og Þytur frá Stekkjardal - kepptu fyrir Steinnes 5. Hjörtur Karl Einarsson og Svipur frá Hnjúkahlíð - kepptu fyrir Hnjúkahlíð 6. Jón Gíslason og Snerpa frá Eyri - kepptu fyrir Sveinsstaði 7. Magnús Ólafsson og Dynur frá Sveinsstöðum - kepptu fyrir Hof 8. Pétur Sæmundsson og Tign frá Brekkukoti - kepptu fyrir Brekkukot
Skrifað af HBE Flettingar í dag: 669 Gestir í dag: 216 Flettingar í gær: 1234 Gestir í gær: 398 Samtals flettingar: 444149 Samtals gestir: 53447 Tölur uppfærðar: 9.5.2024 10:12:00 |
Vafraðu umEldra efni
Um hestamannafélagið Neista Nafn: Hestamannafélagið NeistiTölvupóstfang: [email protected]Afmælisdagur: 1943Heimilisfang: 540 BlönduósStaðsetning: BlönduósUm: Hestamannafélagið Neisti hefur sitt aðsetur á Blönduósi, en er félag hestamanna í Austur-Húnavatnssýslu.Tenglarclockhere
|
© 2024 123.is | Nýskrá 123.is síðu | Stjórnkerfi 123.is