03.08.2010 14:26Síðsumarsýning kynbótahrossa á Blönduósi 17. og 18. ágústKynbótasýning verður á Blönduósi
Tekið er á móti skráningum hjá Búnaðarsambandinu á Blönduósi í síma 451-2602 / 895-4365 eða á netfangið [email protected] , sem er enn betra.
Síðasti skráningardagur er fimmtudagur 12. ágúst. Það sem fram þarf að koma við skráningu: Skráningagjald: Greiðist samhliða skráningu inn á reikning 307-26-2650 á kt: 471101-2650 og senda kvittun á netfangið [email protected] með upplýsingum um fyrir hvaða hross er verið að greiða. Til að fá endurgreitt sýningargjald þarf að tilkynna forföll degi áður en sýningin hefst. Muna DNA-sýni úr öllum stóðhestum og foreldrum þeirra. Blóðsýni og röntgenmyndir af stóðhestum fimm vetra og eldri. Athugið að mæta eingöngu með heilbrigð hross en samkvæmt samþykktum fagráðs verður hrossum vísað frá sem sýna einkenni kvefpestarinnar, s.s. hósta og/eða áberandi hor.
Nánari upplýsingar um tímasetningar verða á heimasíðu Búnaðarsambandsins www.rhs.isBúnaðarsamband Húnaþings og StrandaSkrifað af selma 31.07.2010 11:35Félagsmót NeistaFélagsmót Neista verður haldið á Blönduósi 21. ágúst nk. Nánar auglýst síðar. Skrifað af selma 22.07.2010 22:40Íslandsmót barna,unglinga og ungmennaÞau börn, unglingar og ungmenni sem ætla á Íslandsmótið á Hvammstanga 12. - 15. ágúst eiga að skrá sig á mótið hjá Hestamannafélaginu Neista á netfangið [email protected]. Við skráningu þarf að koma fram nafn keppanda og í hvaða grein hann keppir. Einnig þarf að gefa upp IS númer hests og GSM síma þess er skráir. Hestar þurfa að vera grunnskráðir i World Feng. Síðasti skráningardagur á mótið er 29.júlí. Skráningargjald er 4.000 krónur og greiðist inn á reikning
1105-15-200410 kt. 550180-0499. Staðfestingu þarf að senda á netfang Þyts [email protected]
og gott væri að fá staðfestingu líka á netfang Neista [email protected] svo hægt sé að skrá viðkomandi í keppnina. Skrifað af selma 21.07.2010 18:11Íslandsmót barna,unglinga og ungmenna
-Skráningargjald er 4.000 krónur og greiðist inn á reikning 1105-15-200410 kt. 550180-0499 og senda staðfestingu á [email protected]
Töltkeppni barna-, unglinga- og ungmennaflokkur - Fjórgangur barna-, unglinga- og ungmennaflokkur - Fimmgangur unglinga- og ungmennaflokkur - Gæðingaskeið unglinga- og ungmennaflokkur - Skeið 100m (flugskeið) - Fimikeppni A barna- og unglingaflokkur - Fimikeppni A2 ungmennaflokkur - Töltkeppni T2
Umsjónarmaður keppnishrossa er Steinbjörn Tryggvason s. 893-5070 Tjaldsvæðið í Kirkjuhvammi verður með tilboð fyrir mótsgesti Íslandsmóts. Verð 3.000 per mann vikupassi eða 1.500 per mann helgarpassi. Útilegukortið gildir ekki þessa viku. Nánari upplýsingar hjá Erlu í síma 899-0008. Skrifað af selma 19.07.2010 18:24Síðsumarssýning kynbótahrossa 26. - 30. júlí á VindheimamelumSíðsumarssýning kynbótahrossa
Það sem fram þarf að koma við skráningu: Skráningagjald: Greiðist inn á: 1125 (Sparisjóður Hólahr.) - 26 - 0710 Til að fá endurgreitt sýningargjald þarf að tilkynna forföll degi áður en sýningin hefst. Yfirlitssýning mun fara fram föstudaginn 30. júlí. Byggingadómar munu fara fram á Saurbæ. Muna DNA-sýni úr öllum stóðhestum og foreldrum þeirra. Blóðsýni og röntgenmyndir af stóðhestum fimm vetra og eldri. Athugið að mæta eingöngu með heilbrigð hross en samkvæmt samþykktum fagráðs verður hrossum vísað frá sem sýna einkenni kvefpestarinnar, s.s. hósta og/eða áberandi hor. Skrifað af selma 19.07.2010 14:31Fákaflug 2010
A.-flokkur 100 m. skeið, fljótandi start B.-flokkur 150 m. skeið, kappreiðar Ungmennaflokkur 250 m. skeið, kappreiðar Unglingaflokkur 300 m. brokk, kappreiðar Barnaflokkur 300 m. stökk, kappreiðar Tölt Skráning þarf að berast fyrir mánudaginn 26.júlí n.k. og skráningargjald verður kr. 1.000,- Ekkert skráningargjald tekið í brokk- og stökkkappreiðum auk barnaflokks. Skráning verður opin eftir það fram að miðnætti miðvikudagskvöldið 28.júlí en hver skráning kostar þá kr.3.000,- Þeir sem skrá sig eftir 25.júlí til 28.júlí verða færðir fremst í rásröð. Skráningar þurfa að berast til Guðmundar á netfang [email protected] Skráningargjöld greiðast við skráningu inn á bankareikning: 0310-26-1630, kt. 520705-1630. Að auki verður öflugt skemmtanahald á svæðinu, Böll öll kvöld, veitingasala, Barnagarður, Sölubásar og Trúbadorar Aðgangseyrir inn á mótssvæðið verður kr. 8.000,- en frítt verður fyrir 14 ára og yngri. Öll aðstaða og skemmtanir innifalin í miðaverðinu. Skrifað af selma 14.07.2010 18:00Hestaíþróttir á Unglingalandsmóti UMFÍ í BorgarnesiAth. skráning fer fram hjá USAH ekki í gegnum heimasíðu unglingalandsmótsins. Skrá þarf þátttöku til USAH fyrir 23.júlí n.k í e-maili [email protected], í síma 452-4929 eða koma á skrifstofu milli kl: 16 - 17:00 alla virka daga.
Koma þarf fram: Nafn keppanda, kennitala, keppnisgrein, símanúmer, foreldri/forráðamaður. Keppendur fara á ábyrgð foreldra/forráðamanna á mót þetta. USAH greiðir allan keppniskostnað fyrir keppendur sem skrá sig í gegnum skrifstofu USAH.
Unglingalandsmót UMFÍ verður haldið í Borgarnesi nú um verslunarmannahelgina, 30 .7 - 1.8. Meðal keppnisgreina eru hestaíþróttir. Keppt verður í tveimur flokkum, barnaflokki ( 11 - 13. ára) og unglingaflokki (14 - 18 ára) í tölti og fjórgangi. Keppnin fer fram á svæði hestamannafélagins Skugga við Vindás, rétt ofan við Borgarnes. Skráning hefst 12. júlí og lýkur 23. júlí. Heimasíða mótsins er: http://www.umfi.is/umfi09/unglingalandsmot/ og er þar að finna ýmsar upplýsingar . Forkeppnin hefst kl. 11 föstudaginn 30. júlí og síðan fara úrslit fram á laugardag. Þátttakendur geta fengið hesta hýsta á mótsstað og eins verður unnt að halda þeim til beitar. Vona aðstandendur mótsins til þess að sem flestir mæti og taki þátt í því sem boðið verður upp á um helgina. Sérgreinastjóri hestaíþrótta gefur allar nánari upplýsingar, s: 898-4569 netfang [email protected] . Kristján Gíslason sérgreinastjóri Skrifað af selma 14.07.2010 17:54Íslandsmótið í hestaíþróttum 2010Skráning er hafin á Íslandsmótið í hestaíþróttum sem verður haldið að Sörlastöðum Í Hafnarfirði dagana 25.-28. ágúst. Frá framkvæmdanefnd ÍM2010 Íslandsmótið í hestaíþróttum verður haldið að Sörlastöðum Í Hafnarfirði dagana 25.-28. ágúst. Hér birtast nokkrir punktar um framkvæmd mótsins.
Skrifað af selma 14.07.2010 09:54Fákaflug 2010
Föstudagur: Laugardagur: Hvanndalsbræður Sunnudagur: Skrifað af selma 28.06.2010 22:58Reiðnámskeið á ÞingeyrumReiðnámskeið á Þingeyrum: ...::::==
Indjána - Leikir ==:::::... (Kennari:
Christina Mai leiðbeinandi frá Hólaskóla) HVENÆR: 17.- 18. Júli ( minna vanir ) 24. - 25. Júli ( meira
vanir ) Tímasetning: 10:30h til
16:00h báða dagana Aldurstakmark: 8
til 15 ára ( Hámarksfjölði 8 ) Þátttakendur mæti með eigin
hest! HVAÐ á að
gera? Læra allt á milli himins og jarðar um hestinn.
þrautabrautir, útreiðatúrar og indjánaævintýri á hestbaki ........................................==((::::::::::))==................................................... Mæta skal með öruggum
reiðhjálm, hnakk, beisli, stallmúl, ........ og NESTI. Æskilegur
klæðnaður eru góðir skór með hæl, reiðbuxur eða frekar þröngar buxur úr möttu
efni (ekki jogginggallar), þunnir vettlingar og hlý peysa eða úlpa. Verð:
9000 kr ::::::::::::::::::::::::::::::::::::::::::::::::::::::::::::::::::::::::::::::::::::::::::::::::::::::::::::::::::::::::::::::::::.::::::::::::::: Frekari upplýsingar og skráning: Christina 865-8905 [email protected] Skrifað af selma 23.06.2010 19:59Fákar og fólk
Kvikmyndin Fákar og fólk sem frumsýnd var 17. júní í Félagsheimilinu á Blönduósi er til sölu á DVD diski hjá Selmu í síma 661 9961 eða Valgarði í síma 893 2059. Myndin var tekin haustið 2008. Sýnir hún hrossasmölun á Laxárdal og stóðréttir í Skrapatungurétt og fjallar um það ævintýri sem þessi viðburður er.
Í myndinni koma fram margir húnvetnskir áhugamenn um hestamennsku og ferðamál ásamt fjölda ferðamanna sem voru þátttakendur í ævintýrinu þetta haustið. Má ætla að á þriðja hundrað manns hafi verið á hestbaki þennan dag. Þarna má sjá stóðhrossin koma úr sumarhögunum á Laxárdalnum frjálsleg í fasi og náttúran skartar sínu fegursta í haustlitunum.
Örn Ingi sá um kvikmyndun og tæknivinnu. Önnur myndataka var í höndum Jóns Inga Einarsson og Alfreðs Möller. Útgefandi er Arnarauga/Örn Ingi. Tónlistin í myndinni er eftir Húnvetningana Benedikt Blöndal Lárusson, Hauk Ásgeirsson og Skarphéðinn Einarsson.
Skrifað af selma 19.06.2010 10:0017. júníÞað var blíðskaparveður á Blönduósi 17. júní þegar hátíðarhöld fóru fram sem hestamannafélagið Neisti hafði umsjón með eins og undanfarin ár. Margt var í boði en dagurinn byrjaði á því að Hjörtur formaður og Sigurjón Guðmunds mættu eldsnemma á lyftara til að setja fánana upp og náðust af því myndir þar sem myndasmiður fór líka snemma á fætur Börnum var boðið á hestbak í Reiðhöllinni og var ágætis þátttaka. Gott var að sjá hesta aftur í Reiðhöllinni en þar hefur varla sést hestur síðan í lok apríl. "Forsetaskjóna" var treyst fyrir börnum undir styrkri stjórn Bjargar en hún sagði upp vöfflubakstri þar sem hún tapaði fyrir Óla syni sínum í fyrra og þau Maggi Ó., ásamt fleirum tóku að sér að teyma undir börnum þennan morguninn. Að venju var "blásið" í blöðrur og skrúðganga var farin frá SAH. Þar var andlitsmálun og ýmiss 17. júní varningur til sölu og var bara góð mæting og skemmtileg stemming á planinu. Á Bæjartorginu stjórnaði Gísli Geirsson dagskrá, Sr. Sveinbjörn Einarsson flutti hugvekju, Þórdís Erla Björnsdóttir var fjallkonan að þessu sinni, hátíðarræðuna flutti Bóthildur Halldórsdóttir og tónlistaratriði voru flutt af Dagmar og Sigurjóni annars vegar og þeim Höskuldi og Pálma hins vegar og síðan voru leikir fyrir börnin á Þríhyrnunni. Kaffi og vöfflubakstur var í
höndum Neistafélaga og þar stóðu Knapamerkjakonur ásamt fleiri konum sig stórkostlega eins og alltaf. Sýndar voru 3 kvikmyndir. Ein þeirra, Fákar og fólk, er heimildarmynd úr Laxárdalnum og Skrapatungurétt. Myndin var tekin haustið 2008 og sýnir hrossasmölun á Laxárdal og stóðréttir í Skrapatungurétt og fjallar um það ævintýri sem þessi viðburður er.
Í myndinni koma m.a. fram: Haukur Pálsson, Haukur Suska, Valgarður Hilmarsson, Ragnheiður Jónsdóttir og Jón Ingi Einarsson. Haukur Ásgeirsson, Benedikt Blöndal og Skarphéðinn Einarsson sömdu tónlistina en Örn Ingi framleiddi myndina. Hann fékk þetta frábæra fólk uppá svið fyrir sýningu og veitti þeim þakklætisvott fyrir góða og skemmtilega samvinnu.
(á myndina vantar Skarphéðinn). Fótboltaleikur ársins fór fram þetta kvöld en það var stórleikur Brunavarna A-Hún gegn
meistaraflokki Hvatar í knattspyrnu. Þar áttust við leikmenn meistaraflokks Hvatar í
knattspyrnu og liðsmenn Brunavarna A-Hún. Fjöldi manns kom til að
fylgjast með leiknum en óhætt er að segja að leikurinn hafi verið hin
besta skemmtan frá upphafi til enda og líka í framlengingunni. Um kvöldið var fjölskyldudiskótek sem Sindri Guðmundsson hafði umsjón með. Stjórn Neista þakkar
öllum kærlega fyrir hjálpina, án ykkar væri þetta ekki framkvæmanlegt. Einning þökkum við þeim sem styrktu okkur á einn eða annan hátt kærlega fyrir og öllum sem komu á hátíðahöldin
og
í kaffið kærlega fyrir komuna. Myndir eru komnar í myndaalbúm, teknar af Höskuldi og Selmu. Takk fyrir þær. Skrifað af selma 11.06.2010 18:44Önnur uppskeruhátíðEkki náðist að klára öll próf í knapamerkjum fullorðinna í vor en þó svo að námskeiðum hafi ekki verið lokið þá ákváðu nemendur að halda uppskeruhátíð með leikjum og grilli í Reiðhöllinni. Ekki er hægt að ætlast til þess að allir komist þegar boðað er til samkomu með stuttum fyrirvara en góður hópur mætti til leiks miðvikudagskvöldið 9. júní. Farið var í þrautabraut og ratleik, voru heilmikil tilþrif og klöpp hjá hvoru liði fyrir sig og var þetta hin besta skemmtun, sjá myndaalbúm. Hjörtur formaður Neista grillaði síðan frábært kjöt frá SAH afurðum og átti þessi góði hópur notalega stund saman. Rúmlega 30 fullorðnir stunduðu nám í knapamerki 1 í vetur. Þeir sem áttu eftir að taka próf í vor munu taka þau í haust þegar allir verða við hestaheilsu. Vonandi verður hægt að bjóða uppá námskeið í knapamerki 2 næsta vetur og að þeir sem voru á námskeiðum í vetur sjái sér fært að koma á þau. Það væri frábært Nemendur úr knapamerkjum 1 ásamt kennurunum Söndru og Óla Magg og prófdómaranum Helgu Thor. Skrifað af selma 08.06.2010 23:18Skagfirðingar snúa vörn í sóknSumarsæla í stað Landsmóts hestamanna
Frestun Landsmóts hestamanna sem fara átti fram
27. júní - 5. júlí á Vindheimamelum í Skagafirði er mikið áfall fyrir
hestamennsku og ferðaþjónustu í landinu og samfélagið allt, þó
sérstaklega í Skagafirði, þar sem búið var að skipuleggja móttöku
þúsunda gesta. Meðal þess sem í boði verður fyrir þá sem sækja Skagafjörð heim þessa viku verða Lummudagar með glæsilegum skemmtiatriðum, knattspyrnumót fyrir stúlkur á Sauðárkróki, rútuferðir og gönguferðir um slóðir Sturlunga, Barokkhátíð á Hólum, afmælismót Golfklúbbs Sauðárkróks á Hlíðarendavelli og stórdansleikir með hestamannaívafi í Miðgarði. Kynbótasýning mun fara fram á Vindheimamelum á vegum Hrossaræktarsambandsins. Þá er ótalin sú fjölbreytta afþreying sem alla jafna er boðið er upp á í Skagafirði s.s. flúðasiglingar, skipulagðar gönguferðir, siglingar út í hinar glæsilegu eyjar Drangey og Málmey. Þá bíður Skagafjörður upp á glæsilega flóra safna s.s. Vesturfarasetur, Samgönguminjasafn, Byggðasafnið í Glaumbæ, Víðimýrarkirkju og Minjahúsið á Sauðárkróki, þar sem m.a. er hægt að berja augum ísbjörninn sem gekk á land í Skagafirði árið 2008. Gestastofa sútarans hefur verið opnuð á Sauðárkróki þar sem hægt er að fræðast um sútun á skinnum og roði og þær afurðir sem hönnuðir vinna úr því hráefni. Ný og glæsileg sundlaug á Hofsósi hefur bæst í hóp sundlauga og heitra náttúrulauga sem finna má um allan Skagafjörð. Í Skagafirði eru einnig frábærir veitingastaðir sem m.a. bjóða upp á kræsingar úr afurðum úr héraðinu og gistimöguleikarnir eru fjölbreyttir og margir, m.a. á nýju og glæsilegu tjaldstæði í Varmahlíð og endurbættu tjaldstæði á Sauðárkróki. Skagfirðingar munu því leggja sig sérstaklega fram við að taka vel á
móti og skemmta gestum sínum þá daga sem ætlaðir voru fyrir Landsmót
hestamanna. Áætlað er að Landsmót verði haldið sumarið 2011 í
Skagafirði. Skrifað af selma 04.06.2010 10:00UppskeruhátíðinÆskulýðsnefndin hélt uppskeruhátíð í gær fyrir alla krakkana úr námskeiðshópunum í vetur. Þau mættu flest ásamt foreldrum. Farið var í þrautabraut þar sem krökkunum var skipt í tvö lið og foreldrum einnig. Þetta var hin besta skemmtun og krakkarnir hvöttu sína foreldra mikið þegar þeir fóru í brautina. Síðan var farið í ratleik og endað í pizzu. Öll fengu þau viðurkenningarskjal og gjöf fyrir hvað þau stóðu sig frábærlega vel í vetur og var virkilega gaman að sjá hvað þau eru dugleg og flott á hestbaki. Takk fyrir skemmtilegan vetur og vonum við að þau komi öll aftur á námskeið næsta vetur Auðvitað voru teknar myndir af þessum flottu krökkum Nokkrar myndir komnar í myndaalbúm. Skrifað af selma Flettingar í dag: 3114 Gestir í dag: 343 Flettingar í gær: 1234 Gestir í gær: 398 Samtals flettingar: 446594 Samtals gestir: 53574 Tölur uppfærðar: 9.5.2024 20:03:14 |
Vafraðu umEldra efni
Um hestamannafélagið Neista Nafn: Hestamannafélagið NeistiTölvupóstfang: [email protected]Afmælisdagur: 1943Heimilisfang: 540 BlönduósStaðsetning: BlönduósUm: Hestamannafélagið Neisti hefur sitt aðsetur á Blönduósi, en er félag hestamanna í Austur-Húnavatnssýslu.Tenglarclockhere
|
© 2024 123.is | Nýskrá 123.is síðu | Stjórnkerfi 123.is