25.05.2017 19:20Næsta námskeið hjá FanneyjuFanney kemur aftur til okkar á laugardaginn næsta. Skrifað af Selmu 17.05.2017 21:59Námskeið hjá Fanneyju!
Fanney Dögg ætlar að koma til okkar og vera með námskeið þar sem lögð verður áhersla á undirbúning fyrir keppni.
Skrifað af Selmu 17.05.2017 14:12Belgískur meistari!Lara Margrét Jónsdóttir stefnir á að komast í hollenska landsliðið á Heimsmeistaramótinu í hestaíþróttum, sem haldið verður í sumar. Til þess að öðlast keppnisreynslu, og safna sér inn punktum, tók hún þátt í Belgíska Meistaramótinu um síðastliðna helgi á hryssunni Örk frá Hjarðartúni. Þær gerðu sér lítið fyrir og sigruðu T4, (slaktaumatölt), og enduðu auk þess í þriðja sæti í fjórgangi. Þær stöllur munu taka þátt í fleiri mótum í Hollandi og Belgíu á næstunni á leið sinni að markmiðinu. Ásdís Brynja Jónsdóttir stefnir einnig á að komast á Heimsmeistramótið í hestaíþróttum í fimmgangi á Sleipni frá Runnum. Skrifað af Selmu 12.05.2017 12:11Fjórðungsmót VesturlandsTilkynning frá mótshöldurum Eins og ykkur er kunnugt verður Fjórðungsmót Vesturlands haldið í Borgarnesi 28. júní til 2. júlí 2017. Framkvæmdaaðilar mótsins eru hestamannafélögin fimm á Vesturlandi en auk þeirra eiga keppnisrétt á mótinu félagsmenn í hestamannafélögunum á Vestfjörðum, í Húnavatnssýslum og í Skagafirði. Keppt verður í hefðbundnum greinum gæðingakeppninnar þ.e. A og B-flokki gæðinga, ungmennaflokki, unglingaflokki og barnaflokki Þá verður tölt opinn flokkur og tölt 17 ára og yngri. Þá er stefnt að keppni í 100 m fljúgandi skeiði, 150 og 250 m skeiði. Vegleg verðlaun verða fyrir fyrsta sætið í tölti og 100 m skeiði. Keppendur skrá sig sjálfir í tölt opinn flokk, tölt 17 ára og yngri og skeiðgreinar. Stefnt er að því að sem flestir geti fengið pláss fyrir sín hross í hesthúsum í Borgarnesi en einhverjir geta þurft að vera í næsta nágrenni. Þó verður mikilvægt að þau hross sem lokið hafa keppni fari strax að lokinni keppni frá Borgarnesi þannig að rými verði fyrir þá sem eftir eiga að keppa. Tekið skal fram að stefnt er að því að hvert félag sem eigi keppnisrétt á fjórðungsmótinu fái ákveðin hesthús til umráða og það verði síðan þeirra að ákveða um nýtingu á viðkomandi húsi/húsum þannig að einstakir keppendur eiga ekki sjálfir að útvega sér hesthúspláss í Borgarnesi. Nánar verður tilkynnt um fyrirkomulag hvað þetta varðar síðar. Vekja má athygli á því að aðgangseyri verður mjög í hóf stillt eða 2.500 kr. og síðan getur hver og einn ákveðið hvað hann verður lengi á mótinu t.d. einn dag eða allt mótið. Tjaldstæði með rafmagni verða á Kárastaðatúni (milli þéttbýlisins í Borgarnesi og mótssvæðisins). Selt verður sérstaklega inn á tjaldstæðið og fyrir afnot af rafmagni. Sýning á kynbótahrossum verður í umsjá RML en fjöldi þeirra verður þessi: Stóðhestar 4 v., 5 v. og 6 v. verða 8 í hverjum flokki en 6 í flokki 7 v. og eldri eða samtals 30 stóðhestar. Hryssur 4 v. verða 8, 5 v. verða 14, 6 v. verða 10 og 7 v. og eldri verða 6 eða samtals 38. Samtals munu því 68 kynbótahross eiga rétt til að mæta á fjórðungsmótið. Miðað er við að kynbótahross verði að lágmarki að vera í 25% eigu aðila sem á lögheimili á svæði þeirra hestamannafélaga sem eiga keppnisrétt á mótinu (Vesturland, Vestfirðir, Húnavatnssýslur og Skagafjörður). 27.04.2017 09:43Röð þátttakenda á námskeiði
Mánudagur 1. maí 10:00 Kristín 10:30 Karen 11:00 Hörður 11:30 Sindri 12:00 Paavo 12:30 Haukur 13:00 Hlé 13:30 Sólrún 14:00 Ásdís F. 14:30 Hjördís 15:00 Lilja 15:30 Berglind 16:00 Sindri 16:30 Kristín 17:00 Hörður 17:30 Karen 18:00 Paavo 18:30 Haukur 19:00 Berglind 19:30 Hlé 20:00 Sólrún 20:30 Ásdís F. 21:00 Lilja 21:30 Hjördís
Þriðjudagur 2.maí
08:00 Kristín 08:30 Karen 09:00 Hörður 09:30 Paavo 10:00 Haukur 10:30 Berglind 11:00 Sindri 11:30 Ásdís F. 12:00 Sólrún 12:30 Hjördís 13:00 Hlé 13:30 Kristín 14:00 Karen 14:30 Sindri 15:00 Berglind 15:30 Hörður 16:00 Lilja 16:30 Paavo 17:00 Haukur 17:30 Ásdís F. 18:00 Sólrún 18:30 Hjördís 19:00 Lilja 24.04.2017 13:15Námskeið - Siggi Sig.
Almennt reiðnámskeið með Sigurði Sigurðarsyni verður haldið á Blönduósi mánudaginn 1.maí og þriðjudaginn 2.maí. Knapar á öllum stigum hestamennskunnar eru hvattir til þess að skrá sig. Kennslufyrirkomulagið er þannig að hver þátttakandi fær fjóra einkatíma, tvo á mánudegi og tvo á þriðjudegi. Frábært tækifæri til þess að öðlast meiri þekkingu og fá aðstoð reiðkennara til þess að fá reið- og eða keppnishestinn sinn enn betri. Skráning er á netfangið [email protected], síðasti skráningardagur er föstudaginn 28. apríl. Athugið að einungis verða tíu þátttakendur, þannig að fyrstur kemur, fyrstur fær. Verð: 20.000 krónur. 08.04.2017 22:09Lokamót vetrarins
Síðasta vetrarmót Neista var haldið í gær með góðri þátttöku. Keppt var í T7 bæði unglinga og fullorðinna og fimmgangi í opnum flokki og áhugamanna. T7 Unglingaflokkur úrslit. 1.Una Ósk á Bikar - 6,5 T7 Flokkur fullorðinna B-úrslit. 6.Rúnar á Kantötu frá Steinnesi - 6 T7 Flokkur fullorðinna A-úrslit. 1.Harpa á Drottningu frá Kornsá - 7,25 Fimmgangur í áhugamannaflokk 1.Veronika á Rós frá Sveinsstöðum - 5,8 Fimmgangur í opnum flokk 1.Jón Kristófer á Jódísi frá Hæli - 6,2 06.04.2017 22:36Fimmgangur ráslisti
Föstudagskvöldið kl. 19:00 hefst keppni í fimmgang og T7 í Reiðhöllinni. Ungar knattspyrnukonur verða með samlokur, múffur, kaffi, kakó ofl. gott til sölu í fjáröflunarskyni þannig að engin þarf að svelta á milli þess sem gæðingar eru teknir til kostanna.
Ráslistinn lítur svona út með fyrirvara um breytingar:
03.04.2017 23:55Fimmgangur og fleira skemmtilegt.
Fimmgangur og fleira gott í Reiðhöllinni Arnargerði
Föstudaginn 7. apríl verður keppt í Fimmgangi, T7 og skeiði í Reiðhöllinni Arnargerði. Í fimmgangi verður keppt í flokki áhugamanna og opnum flokki. Fyrirkomulag verður með þeim hætti að einn er inn á í einu og ræður röð gangtegunda en sýnir tölt frjálsa ferð einn hring, brokk einn hring, stökk einn hring og fet hálfan, skeiðaðar eru tvær ferðir á annarri hvorri langhliðinni að eigin vali og litið svo á að um ferjuleið sé að ræða milli ferða. Í T7 verður keppt í flokki fullorðinna og unglingaflokk, verði skráningar barna yngri en 13 ára margar verða riðin úrslit hjá þeim sérstaklega. Að lokum verður boðið upp á skeið í gegnum höllina með tímatöku. Skráningargjöld hjá fullorðnum eru kr. 2.000 á skráningu en 1.500 kr. hjá þeim yngri. Skráningargjöld má greiða fyrirfram inn á 0307-26-055624 kt. 480269- 7139. ATH. þeir sem ekki hafa greitt gjöld síðustu móta vinsamlegast klári það mál sem fyrst. Skráningum skal skila á [email protected] fyrir kl. 21:00 fimmtudaginn 6. apríl. Nefndin.
26.03.2017 20:05Fjórgangur og T7
Á föstudaginn var fór fram keppni í fjórgangi og T7 í Reiðhöllinni Arnargerði. Um 40 skráningar voru á mótið og þykir það gott. Mótið tókst með ágætum en stjórn Neista sló í gegn í hléinu með því að bjóða upp á pizzur sem runnu ljúflega ofan í viðstadda. Stefnt er að næsta móti 7. apríl og verður spennandi að sjá hvað verður boðið upp á þar bæði í keppni og veitingum. Úrslit urðu sem hér segir:
T7 Unglingaflokkur Fork./úrslit.
T7 Flokkur fullorðinna Fork./úrslit.
Fjórgangur unglingaflokkur
24.03.2017 19:02Ráslisti T7 og fjórgangur
Ráslistinn eins og hann lítur út núna kl. 13:10. Hér er svo áríðandi tilkynning frá stjórn Neista: Á mótinu í kvöld býður Neisti keppendum og gestum upp á pizzur og drykki í hléi. Við vonumst til þess að sjá sem flesta í reiðhöllinni og eiga góða stund saman. Stjórn Neista
24.03.2017 19:01T7 í Reiðhöllinni á föstudaginn
T7 í öllum flokkum á föstudagskvöldið í Reiðhöllinni Arnargerði. Vegna fjölda áskorana hefur verið ákveðið að bjóða upp á keppni í T7 á föstudagskvöldið í opnum flokki og áhugamannaflokki. Riðinn er einn hringur á hægu tölti þá snúið við og frjáls ferð á tölti. Að öðru leyti gildir áður auglýst fyrirkomulag. Keppni hefst kl. 19:00 með T7 unglinga, þá T7 áhugamenn , síðan T7 opinn flokkur. Fjórgangur unglinga er næstur, þá áhugamenn í fjórgangi og loks fjórgangur í opnum flokki. Sama röð í úrslitum. Verði sérstaklega fáar skráningar kann að koma til greina að sameina flokka. Skemmtilegast er ef sömu hestar eru ekki að keppa í báðum greinum. Nefndin. 24.03.2017 19:00Fjórgangur Reiðhöllinni ArnargerðiFöstudagskvöldið 24. Mars kl. 19:00 verður Fjórgangur í Reiðhöllinni Arnargerði og T7 í unglingaflokki. Keppt verður í fjórgangi, í flokki unglinga 16 ára og yngri, áhugamanna flokki og opnum flokki. Einnig verður boðið upp á keppni í T7 fyrir yngri en 16 ára. Í fjórgangi er riðinn einn hringur á hægu tölti, einn hringur á fegurðar tölti, einn hringur á brokki, einn hringur á stökki og hálfur á feti. Áður en keppandi hefur keppni má hann ríða hálfan hring þ.e. hefja keppni að sunnanverðu og ljúka henni að norðan. Keppandi ræður röð gangtegunda en í lok keppni skal hægja niður á fet. Skráningar berist á netfangið: [email protected] fyrir kl. 21:00 fimmtudaginn 23. mars. Skráningargjald í unglingaflokki er kr. 1.500 og kr. 2.000 í öðrum flokkum. Fram komi nafn á hrossi, uppruni, aldur og litur. Skráningargjöld má greiða fyrirfram inn á 0307-26-055624 kt. 480269- 7139. Nefndin. Flettingar í dag: 3114 Gestir í dag: 343 Flettingar í gær: 1234 Gestir í gær: 398 Samtals flettingar: 446594 Samtals gestir: 53574 Tölur uppfærðar: 9.5.2024 20:03:14 |
Vafraðu umEldra efni
Um hestamannafélagið Neista Nafn: Hestamannafélagið NeistiTölvupóstfang: [email protected]Afmælisdagur: 1943Heimilisfang: 540 BlönduósStaðsetning: BlönduósUm: Hestamannafélagið Neisti hefur sitt aðsetur á Blönduósi, en er félag hestamanna í Austur-Húnavatnssýslu.Tenglarclockhere
|
© 2024 123.is | Nýskrá 123.is síðu | Stjórnkerfi 123.is