Færslur: 2009 Janúar

30.01.2009 00:04

Ótitlað

Sjö nýir knapar í KS-Deildina

Sjö nýjir knapar bættust í KS-Meistaradeild Norðurlands síðastliðið þriðjugdagskvöld. Keppt var í fjórgangi og fimmgangi. Árni B. Pálsson og Karen Líndal Marteinsdóttur voru jöfn og efst í fjórgangi og Líney M Hjálmarsdóttir varð efst í fimmgangi.

Í þriðja sæti í fjórgangi voru jöfn Líney M. Hjálmarsdóttir og Helga Una Björnsdóttir. Í fimmta sæti Erlingur Ingvarsson.

Í öðru sæti í fimmgangi var Páll Bjarki Pálsson, í þriðja sæti Árni B. Pálsson, í fjórða sæti Erlingur Ingvarsson og í fimta sæti Elvar Einarsson.

Á myndinni er Páll B Pálsson á Sif frá Flugumýri á LM2002.


Þeir knapar sem komust inn í KS-Deildina eru:

Árni B.Pálsson.
Erlingur Ingvarsson
Ragnar Stefánsson
Björn Jónsson
Líney Hjálmarsdóttir
Páll Bjarki Pálsson
Elvar Einarsson


frétt fengin af lh vefnum

30.01.2009 00:01

Meistaradeild KS

 

Úrtaka fyrir Meistaradeild KS  var haldin síðastliðið þriðjudagskvöld í Svaðastaðahöllinni á Sauðárkróki. Jóhann B Magnússon varð efstur í fjórgangi á Lávarði frá Þóreyjarnúpi  með 5.67. Ragnar Stefánsson varð efstur á Kola frá Eyjarkoti í fimmgangi með  5.53. Meðfylgjandi eru öll úrslit úrtökunnar.

Úrslit úrtökunnar
Fjór gangur
1. Jóhann B Magnússon Lávarður Þóreyjarnúpi 7v. Grár        5.67
2.  Björn Jónsson Aron Eystri-Hóli 10v. Grár   6.00
3.  Þorsteinn Björnsson Reynir Flugumýri 6v. Rauðtv.stj  6.00
4.  Ásdís H. Sigursteinsdóttir Von Árgerði 7v. Jörp  5.57
5.  Ragnar Stefánsson Lotning Þúfum 8v. Rauðblesótt sokkótt  6.03
6.  Friðrik M. Sigurðsson Dagur Hjaltast.hv. 12v. Móál Bles  6.07
7.  Brynjólfur Jónsson Fagri Reykjum 9v. Rauðvindóttur  6.00
8.  Erlingur Ingvarsson Nótt Torfunesi 6v. Brún   6.13
9.  Elvar E. Einarsson Kátur Dalsmynni 9v. Rauður  5.97
10.  Þór Jónsteinsson Geisli Úlfsstöðum 6v. Rauðblesóttur  5.63
11.  Viðar Bragason Lilja Möðruvöllum 10v. Rauð   5.40
12.  Karen L. Marteinsdóttir Medúsa V-Leirárgörðum 7v.Grá  6.43
13.  Rasmus Bergsten Von S-Kolugili 6v. Brún   5.73
14.  Árni M. Pálsson Albina Möðrufelli 7v. Leirljós   6.43
15.  Líney M. Hjálmarsdóttir Þytur Húsavík 9v. Brúnn  6.17
16.  Páll B. Pálsson Haukur Flugumýri 7v. Bleiktvístjörnóttur  6.00
17.  Jóhanna Friðriksdóttir Húni S-Ásgeirsá 13v. Jarpblesóttur  5.13
18.  Helga U. Björnsdóttir Hljómur Höfðabakka 6v. Brúnn  6.17

Fimm gangur
1. Ragnar Stefánsson Kola Eyjarkoti 8v. Brún   5.53
2. Viðar Bragason Zorro Hraukbæ 14v. Grár   5.20
3. Brynjólfur Jónsson Röðull Reykjum 12v. Rauður  5.07
4. Erlingur Ingvarsson Máttur Torfunesi 7v. Jarpstjörnóttur  6.20
5. Páll B. Pálsson Glettingur Steinnesi 8v. Grár   6.37
6. Þorsteinn Björnsson Eldjárn Þverá 15v. Rauðstjörnóttur  5.20
7. Jóhann B. Magnúss. Maistjarna Þóreyjarnúpi 6v. Rauðtvíst.  0.00
8. Helga U. Björnsdóttir Samba Mið-Hópi 6v. Jörp  5.00
9. Friðrik M. Sigurðsson Jaðar Litlu-Brekku 8v. Jarpstjörnóttur 5.23
10. Elvar E. Einarsson Smáralind S-Skörðugili 7v. Brún  6.03
11. Jóhanna Friðriksdóttir Húni S-Ásgeirsá 13. Jarpblesóttur  4.93
12. Rasmus Bergsten Draumur Björgum 7v. Brúnn   4.23
13. Líney M. Hjálmarsdóttir Vaðall Íbishóli 10v. Brúnn  6.57
14. Ásdís H. Sigursteinsdóttir Von Árgerði 7v. Jörp   5.87
15. Karen L. Marteinsdóttir Korkur Þúfum 7v. Bleikálóttur  4.33
16. Þór Jónsteinsson Seifur Skriðu 17v. Rauðblesóttur  5.77
17. Björn Jónsson Hagsýn Vatnsleysu 10v. Rauðblesótt  5.67
18. Árni B. Pálsson Boði Breiðabólstað 8v. Brúnn   6.27


Til hamingju Ragnar með góðan árangur og gangi þér vel ;)

29.01.2009 21:22

Myndir í myndalbúmi ....

Erum búin að setja myndir í myndaalbúm af krökkunum sem eru á reiðnámskeiði.
Námskeiðin byrjuðu í vikunni hjá öllum nema knapamerki 3 sem var byrjað fyrir nokkru.
Vonandi hefur tekist að ná mynd af öllum en ef það vantar af einhverjum þá látið okkur vita og við reynum að bæta úr því.
Förum væntanlega aftur á stjá með myndavélina fljótlega emoticon

28.01.2009 23:08

Meira en þriðja hvert kynbótahross með áverka

Heyrst hefur að 37% kynbótahrossa á LM2008 hafi verið með áverka af einhverju tagi; aðallega fótaágrip og sár í munni. Guðlaugur Antonsson, hrossaræktarráðunautur vildi ekki staðfesta þessa tölu en segir það rétt að hlutfallið sé hærra nú en áður.


"Það er rétt að áverkar voru meiri á LM2008 heldur en þeir hafa verið áður síðan farið var að skrá þá. Ég tel ekki rétt að birta niðurstöðurnar að svo stöddu. Ég á þó von á því að það verði haldinn málfundur um þessi mál í vetur og farið yfir hugsanlegar ástæður. Fagráðið sættir sig auðvitað ekki við þetta háa hlutfall," segir Guðlaugur.

"Af hverju hlutfallið er hærra núna get ég ekki svarað. Það getur ýmislegt komið til. Knapar töluðu um að yfirborð brautarinnar hefði verið laust í sér, sem gæti verið orsök. Eðlilega vakna síðan spurningar um hvort byggingarlag hrossanna eigi einhvern þátt í auknum ágripum. Það kom fram í rannsókn sem Friðrik Már Sigurðsson gerði á Hvanneyri að svo virðist sem fótahá og stutt hross séu frekar í áhættuhópi með að grípa á sig. Og það liggur fyrir að hrossin hafa verið að hækka og styttast.

Einnig spyr maður sig hvort járning og reiðmennska eigi hlut að máli. Hrossin eru langflest járnuð af fagmönnum og það eru bestu knapar landsins sem eru að sýna, þannig maður hefði haldið að þeir þættir ættu að vera í lagi. En þetta gæti til dæmis verið spurning um hófastærð, - og stærðarmun á fram- og afturhófum upp á allt að tveimur sentimetrum! Hugsanlegt er líka að hrossin séu spennt og það auki á ágripahættuna.

Þórður Þorgeirsson, einn helsti knapi á kynbótahrossum í fjölda ára, sagði í erindi um ágrip sem hann flutti á ráðstefnunni Hrossarækt 2003 að knapar hefðu það í hendi sér í flestum tilvikum hvort hross grípa á sig eða ekki. Það vekur að sjáfssögðu upp spurningar, - ef hann hefur rétt fyrir sér!" segir Guðlaugur Antonsson.

27.01.2009 21:01

Frá stjórn Hestaeigendafélags Blönduóss


Til hestamanna og þeirra sem leigja land af Blönduósbæ.


Frá stjórn Hestaeigendafélags Blönduóss

Hluti stjórnar Hestaeigendafélagsins fundaði nýverið með forsvarsmönnum Blönduóssbæjar.

Á fundinum kom fram að landleiga verður sú sama og í fyrra þ.e. eftir að tveir gjalddagar voru klipptir af, þó með þeirri 5% hækkun sem verður á fasteignagjöldum öðrum.

Einnig var kynnt að hafin er vinna við að meta það land sem í útleigu er með það fyrir augum að búa til þrjá gjaldflokka þar sem gæði lands hafa áhrif á leigugjald, eins og rætt var á fundi síðastliðinn vetur með hestamönnum. Bæjarstarfsmenn lögðu fram ákveðin gögn og síðan hefur Bjarni Maronsson landnýtingarráðunautur unnið að málinu en hann lýkur ekki sínum störfum fyrr en jörð er auð eða gróður kominn af stað.

Fram kom að bæjarstarfsmenn telja að betra eftirlit hafi verið með hrossum í stóru hólfunum í sumar og haust og því ætti leiga að innheimtast betur en oft áður og ætti því jafnræðis milli manna að vera betur gætt. Innheimta er nú að hefjast.

Rætt var um ýmis önnur hagsmunamál sem varða hestamenn og sveitarfélagið s.s. hundahald, lausagöngu búfjár, umgengi og þrif og verður hver og einn að líta í eigin barm í þeim málum svo ekki þurfi að sverfa til stáls milli bæjaryfirvalda og einstaklinga.

Fyrir hönd stjórnar Hestaeigendafélags Blönduóss

Hörður Ríkharðsson

Tekið af www.huni.is

27.01.2009 18:46

 

 

23.01.2009 10:27


Ís-Landsmót 2009


 

Húnvetnskir hestamenn eru ekki af baki dottnir og auglýsa hér með
að blásið verður til leiks á
 Ís-landsmóti 2009 á Svínavatni  laugardaginn 7. mars næstkomandi. 
Mótið í fyrra tókst vel, og við ætlum að hafa fyrirkomulag með svipuðu sniði, tímasetningin nánast sú sama,
enda er Ægir bóndi og íseigandi í Stekkjardal farinn að undirbúa ísinn, með aðstoð almættisins. 
Allt í reglu á þeim heimilum báðum.


   Keppt verður í opnum flokki í A- og B- flokki gæðinga og tölti.
Fyrirkomulag verður svipað og undanfarin ár,
og verður nánar auglýst á vefmiðlum og á heimasíðum húnvetnsku hestammanafélaganna, 
www.neisti.net  og www.123.is/thytur 
þegar nær dregur.

 


 

F.H. undirbúningsnefndar; Jón Gíslason

23.01.2009 08:00

 

Ódýrt að tryggja reiðtygi

Þjófar láta nú greipar sópa í hesthúsum á
höfuðborgarsvæðinu. Lögreglan hefur varað
við innbrotunum og telur að brotist hafi verið
 inn í allt að 50 hesthús. Hnakkar eru það
sem þjófarnir ágirnast mest.

Rétt er að benda hestafólki á að tiltölulega ódýrt er að tryggja reiðtygi gegn innbrotum og bruna. Hjá Tryggingamiðstöðinni kostar slík trygging upp á 500 þúsund krónur um 2500 krónur á ári, en fæst aðeins sem aukatrygging ef viðskiptavinurinn er með aðrar tryggingar hjá TM. Hjá VÍS kostar 500 þúsund króna trygging um 3500 krónur og hjá Sjóvá tæpar 5000 þúsund.

Rétt er að taka fram að þetta eru viðmiðunartölur. Endanlegt verð veltur á því í hve miklum viðskiptum viðskiptavinurinn er. Fjarlægð frá slökkviliði skiptir líka máli. Ekki er sjálfgefið að þessar tryggingar séu seldar í gegn um síma. Hjá VÍS er beðið um myndir af þeim reiðtygjum sem tryggja á.

Í öllum tilvikum senda tryggingafélögin fulltrúa sinn á staðinn til að meta aðstæður ef innbrot hefur verið framið. Ummerki um innbrot þurfa að vera greinileg. Rétt er að benda fólki á að kalla strax á lögreglu ef innbrot hefur átt sér stað. Lögregluskýrsla þarf að liggja fyrir svo tjón fáist bætt.

20.01.2009 22:43

Vetrarstarf Æskulýðsnefndar


Í kvöld fjölmenntu og þá meinum við FJÖLMENNTU börn og foreldrar í Reiðhöllina í Arnargerði í þetta skiptið var salurinn okkar of lítill. Æskulýðsnefndin var
með kynningu á vetrarstarfinu sem byrjaði á því að Helga Thoroddsen kennari, verkefnisstjóri og höfundur Knapamerkja við Hólaskóla hélt fyrirlestur um tilgang og markmið knapamerkjanna en í boði í vetur verða knapamerki 1, 2 og 3. sem og reiðnámskeið yngri barna sem skiptist í hópa fyrir byrjendur/ lítið vana og vana knapa . Kennarar hjá okkur í vetur eru  Sigurbjörg og Sandra Marín. Kynnt var dagskrá vetrarins sem er mjög spennandi, mörg mót og sýningar. Alls eru skráð á námskeiðin um 50 börn og unglingar sem verður að teljast mjög gott miðað við íbúafjölda. Krakkar þið eruð frábær og dugleg ,Takk fyrir komuna í kvöld við sjáumst hress í næstu viku með Fákana okkar klára

Við viljum vekja athygli á því að börnin og unglingarnir eru á ábyrgð foreldra bæði á æfingum og á sýningum sem farið er á.


Bestu kveðjur Æskulýðsnefnd Neista

Að gefnu tilefni vill Æskulýðsnefndin koma á framfæri að þar sem barnastarfið er að hefjast eru hundaeigendur beðnir vinsamlega að virða þær reglur að LAUSAGANGA HUNDA ER BÖNNUÐ líka í hesthúsahverfinu.

15.01.2009 22:14

Myndir

Myndir komnar inn af unglingunum í tíma hjá Sibbu í knapamerki 3.
Afar áhugavert og skemmtilegt hjá þeim.

15.01.2009 19:44

Nýir eigendur að stóðhestinum Braga frá Kópavogi

Tryggvi Björnsson á Blönduósi og Magnús Jósefsson í Steinnesi hafa keypt stóðhestinn Braga frá Kópavogi. Seljandi er Jónas Hallgrímsson á Seyðisfirði. Tryggvi hyggst beita Braga á keppnisvellinum á komandi keppnistímabili.

Bragi er undan hálfsystkinunum Geysi frá Gerðum og Álfadísi frá Kópavogi, sem bæði voru undan Ófeigi frá Flugumýri. Hann vakti mikla athygli á íshallarmótum þar sem hann gerði mikla lukku, þá foli á fimmta vetur. Hann er með allgóðan kynbótadóm, 8,18, og hefur fengið 9,0 fyrir tölt, fegurð, fet, hægt tölt og hægt stökk. Hann er með 7,5 fyrir skeið.

Tryggvi bindur vonir við að Bragi geti orðið skeinuhættur í fimmgangi og tölti, eins og einkunnir gefa til kynna. Hann segir að skeiðið sé mun efnilegra en hann reiknaði með. Bragi á 48 skráð afkvæmi. Þar af er eitt með dóm, Bjartey frá Úlfsstöðum, sem fékk 7,58 fjögra vetra.

14.01.2009 22:29

Ótitlað

Frá Reiðhöllinni Svaðastöðum



Nú er búið að raða niður helstu atburðum sem verða haldnir í Svaðastaðahöllinni á Sauðárkróki í vetur. Það sem hæst ber er  KS deildin, Skagfirska mótaröðin, Áskorendamót Riddara, Tekið til kostanna, sölusýningar og það sem er nýjast, Stórsýningin Ræktun Norðurlands 2009.

Auk þeirra viðburða sem upp eru taldir verður á dagskránni sýnikennsla á vegum FT-Norður og Flugu sem væntanlega verða einu sinni í mánuði og einnig hefðbundin reiðkennsla. Þessir atburðir auk þeirra sem ekki eru taldir upp hér verða auglýstir sérstaklega síðar.

Viðburðadagatal Svaðastaðahallarinnar

28. jan.            KS deildin - úrtaka

18. feb            KS deildin- fjórgangur

25. feb            Skagfirska mótaröðin - fjórgangur

4. mars            KS  deidin - tölt

11. mars          Skagfirska mótaröðin - tölt

14. mars          Áskorendamót Riddara norðursins

18. mars          KS deildin - fimmgangur

28. mars          Ræktun Norðurlands 2009 - stórsýning

28. mars          Sölusýning í samstarfi við Hrímnishöllina Varmalæk

1. apríl             KS deildin - smali og skeið

8. apríl             Skagfirska mótaröðin - fimmgangur og heldrimannaflokkur

15. apríl           Skagfirska mótaröðin - smali og skeið

25.-26. apríl    Tekið til kostana - stórsýning

26. apríl           Sölusýning í samstarfi við Hrímnishöllina Varmalæk

14.01.2009 22:23

Húnvetnska liðakeppnin

Húnvetnska liðakeppnin

Stefnt er að því að halda fyrsta mótið í Húnvetnsku liðakeppninni í Hvammstangahöllinni 13. febrúar næstkomandi. Mótið er eins og nafnið ber með sér, liðakeppni og verður heil mótaröð þar sem safnað verður stigum á hverju móti fyrir sig og í lok mótaraðarinnar stendur uppi eitt sigurlið. Á fyrsta mótinu verður keppt í tölti, í 1. flokki, 2. flokki og flokki 16 ára og yngri.

Liðin skiptast þannig,
Lið 1: Hvammstangi, Miðfjörður og Hrútafjörður
Lið 2: Vatnsnes, Vesturhóp og Línakradalur (Gamli Kirkjuhvammshr. og Þverárhreppur)
Lið 3: Víðidalur og Fitjárdalur
Lið 4: Austur-Húnavatnssýsla

Reglur fyrir Húnvetnsku mótaröðina/liðakeppni eru þessar:

1. flokkur, ef keppendur eru 16 eða fleiri eru B-úrslit haldin. 4 efstu eru öruggir í A-úrslit, sá fimmti þarf að vinna sig upp í úrslitin.

Stig í A-úrslitum eru gefin þannig:
1. sæti - 12 stig
2. sæti - 10 stig
3. sæti - 8 stig
4. sæti - 7 stig
5. sæti - 6 stig

Sé keppt í B-úrslitum fá þeir aðilar sem komast í þau úrslit 1 stig nema það par sem vinnur sig upp úr B-úrslitum fær engin stig í B-úrslitunum en á möguleika á fleiri stigum í A-úrslitum.

2. flokkur, sömu reglur í sambandi við A- og B-úrslit. Stigagjöf er þó öðruvísi.

Stig í A-úrslitum eru gefin þannig:
1. sæti - 6 stig
2. sæti - 5 stig
3. sæti - 4 stig
4. sæti - 3 stig
5. sæti - 2 stig

Sé keppt í B-úrslitum fá þeir aðilar sem komast í þau úrslit 1 stig nema það par sem vinnur sig upp úr B-úrslitum fær engin stig í B-úrslitunum en á möguleika á fleiri stigum í A-úrslitum.

Knapar verða að vera í sama liðinu allt tímabilið, þ.e. bannað að skipta um lið á miðju tímabili.

Barna- og unglingaflokkur (16 ára og yngri) eru ekki með í stigakeppninni.

Engin takmörk eru á fjölda liðsmanna í hverju liði. Leyfilegt er að fá liðsmann utan héraðs til að keppa fyrir sitt lið, en hann verður þá að keppa með sama liðinu allt tímabilið.

Skráning er á mail: [email protected] fyrir 10. febrúar nk.

14.01.2009 22:09

FEIF Youth Camp 2009

FEIF Youth Camp 2009

 

 

Æskulýðsnefnd LH auglýsir eftir umsóknum á FEIF Youth Camp sem haldinn verður í Bandaríkjunum dagana 17. - 24. júlí 2009. Búðirnar verða haldnar í Wisconsin, í um 2 klst. fjarlægð frá Chigaco á búgarði sem heitir Winterhorse farm.  

 

Dagskráin verður í grófum dráttum á þessa leið; farið verður í reiðtúr, indíanar og kúrekar koma í heimsókn, bátaferð, farið í vatnaskemmtigarð og jafnvel í smá verslunartúr. 

 

Þátttakendur þurfa að vera á aldrinum 13 - 17 ára, á árinu, og verður gerð krafa um að þeir hafi einhverja reynslu í hestamennsku og geti gert sig skiljanleg á ensku.

 

Þátttökugjald er 530 - 550 ? og hefur hvert land rétt til að senda 2 þátttakendur, en einnig verður biðlisti ef sæti losna. Flugfargjald er ekki innifalið í þátttökugjaldinu.

 

Umsóknir þurfa að berast á skrifstofu LH, Engjavegi 4, Íþróttamiðstöðinni Laugardal, 104 Reykjavík fyrir 20. janúar 2009. Á umsókninni þarf að koma fram nafn, kennitala, heimili, í hvaða hestamannafélagi viðkomandi er og nokkrar línur um reynslu í hestamennsku.

 

Þegar búið verður að velja þá úr sem uppfylla skilyrðin verður dregið úr umsóknum.

 

Kveðja frá Æskulýðsnefnd Landssambandsins

13.01.2009 09:12

Huginn í Skagafjörðinn

 

Skagfirðingar hafa tekið Huginn frá Haga á leigu næsta sumar. Huginn stimplaði sig inn sem kynbótahestur í fyrra. Þá komu fram nokkur úrvals hross undan honum.
Athygli vöktu nokkur sérlega fríð og framfalleg hross undan Huginn, sem sjálfur er ekki fríður, með 7,0 fyrir höfuð. Framúrskarandi dætur hans sem fram komu í fyrra voru meðal annarra Gletta frá Þjóðólfshaga, efst í fjögra vetra flokki hryssna á LM08, og Mýkt frá Seljabrekku, þriðja í flokki sex vetra hryssna. Hún er hæst dæmda afkvæmi Hugins. Þá má einnig minna á stóðhestinn Hreim frá Fornusöndum, sem er með 8,65 fyrir hæfileika.

Helstu kostir afkvæma Hugins eru samkvæmt kynbótamati BÍ mikið skeið ásamt góðum vilja og lund. Tölt og brokk er einnig vel fyrir ofan meðallag. Huginn fékk fyrstu verðlaun fyrir afkvæmi á LM2008. 228 afkvæmi eru skráð í WorldFeng. Þar af eru 21 með 7,80 og hærra í aðaleinkunn.
Flettingar í dag: 505
Gestir í dag: 54
Flettingar í gær: 1125
Gestir í gær: 95
Samtals flettingar: 434483
Samtals gestir: 51288
Tölur uppfærðar: 27.4.2024 14:01:23

Vafraðu um

Eldra efni

Um hestamannafélagið Neista

Nafn:

Hestamannafélagið Neisti

Afmælisdagur:

1943

Heimilisfang:

540 Blönduós

Staðsetning:

Blönduós

Um:

Hestamannafélagið Neisti hefur sitt aðsetur á Blönduósi, en er félag hestamanna í Austur-Húnavatnssýslu.

Kennitala:

480269-7139

Tenglar

clockhere