Færslur: 2007 Apríl

20.04.2007 18:38

Vorferð Hestamannafélagsins Neista á sumardaginn fyrsta

Hestamannafélagið Neisti fór í sína árlegu vorferð á sumardaginn fyrsta.  Riðinn var stór hringur um svæðið.  Stoppað var við Laxá á Ásum, þar sem drukkið var kakó og borðaðir nýbakaðir ástarpungar í boði húsmóðurinnar á Húnsstöðum Elínu Rósu Bjarnadóttur. Síðan var ferðinni haldið heim í Arnargerði þar sem grillað var lambakjöt og allir sælir og mettir.  Þátttaka var mjög góð en það voru um 40 knapar á öllum aldri sem tóku þátt. Nokkrar myndir úr ferðinni eru á myndasíðu.





16.04.2007 21:08

Vorferðin á sumardaginn fyrsta

Vorferð Hestamannafélagsins Neista

Árleg vorferð Hestamannafélagsins Neista verður farin sumardaginn fyrsta 19. apríl n.k. Riðið verður frá reiðhöllinni í Arnargerði kl. 16:00. Grillað verður við reiðhöllina eftir reiðtúrinn og er matur innifalinn í verðinu, en því verður stillt í hóf.
Vinsamlegast skráið ykkur hjá Höskuldi í síma 894-8710 eða Elínu í síma 893-4685

10.04.2007 17:03

Grímur Gíslason jarðaður í dag

Í dag var jarðsettur Grímur Gíslason heiðursborgari Blönduóss.  Grímur var alla tíð mikill hestamaður og félagsmaður í Neista. Núverandi og 4 fyrrverandi formenn í Neista stóðu heiðursvörð við Blönduósskirkju, bæði fyrir og eftir athöfn.  Síðan var riðið á undan líkfylgdinni að kirkjugarðinum á Blönduósi. Myndir eru í myndaalbúmi af heiðursverðinum.


09.04.2007 18:00

Vorferð Neista

Félagsmenn athugið !

Vorferð Hestamannafélagsins Neista verður farin sumardaginn fyrsta 19 apríl nk. Riðið verður frá reiðhöllinni á Blönduósi kl.16.00.

Nánari upplýsingar koma fljótlega

Ferðanefndin

04.04.2007 17:31

Meistarakeppni Húnvetninga

Meistarakeppni Húnvetninga
Eftir Magnús Ólafsson

Það voru hátt í 60 keppendur á lokamótinu í Meistarakeppni Húnvetninga, sem haldið var í Reiðhöllinni Arnargerði á Blönduósi sl. laugardag. Keppni var hörð og skemmtileg í öllum flokkum, en keppt var í tölti unglinga, opnum flokki og áhugmannaflokki. Þá var einnig keppt í fimmgangi í opnum flokki og áhugamannaflokki. Verðlaun voru veitt fyrir 5 efstu í hvorum flokki.

Meistaramót Húnvetninga samanstendur af þremur mótum sem öll voru haldin í Reiðhöllinni Arnargerði. Farandbikar er veittur stigahæstu einstaklingum yfir öll mót vetrarins. Ólafur Magnússon bóndi og tamningamaður á Sveinsstöðum var öruggur sigurvegari vetrarins í opnum flokki en hann náði að sigra í sínum flokki í öllum mótunum. Keppt var tvisvar í tölti, og einu sinni í fjórgangi og fimmgangi. Hann keppti alltaf á Gáska frá Sveinsstöðum, nema í fimmgangi, þegar hann keppti á graðhestinum Nirði frá Útnirðingsstöðum.

Í flokki áhugamanna var stigahæstur Jóhann Albertsson á Gauksmýri, en hann hlaut 33 stig af 48 mögulegum. Í unglingaflokki var Helga Una Björnsdóttir stigahæst og hlaut 32 stig.

Úrslit mótsins á laugardag voru eftirfarandi.

Tölt opinn flokkur:

Ólafur Magnússon Gáski 8 v. brúnn

Einar Reynisson Ormur 6 v. brúnn

Gunnar Reynisson Sykill 5 v. jarpur

Tryggvi Björnsson Gerpla 5 v. rauðstjörnótt

Pétur Vopni Sigurðsson Dreyri 11 v. rauður

Pálmi Geir Ríkharðsson Biskup 6 v. rauðblesóttur.




Tölt áhugamenn:

Sigríður Lárusdóttir Erla 8 v. brúnskjótt

Geir Eyjólfsson Kalli 7 v. brún

Þorgeir Jóhannsson Frá 11 v. jörp

Hjördís Ósk Óskarsdóttir Gáta 15. v. jörp

Jóhann Albertsson Tvistur 7 v. rauðstjörnóttur.



Tölt unglingar:

Aðalheiður Einarsdóttir Slaufa 10 v. jörp

Helga Una Björnsdóttir Óratoría 7 v. brún

Karen Guðmundsdóttir Spaði 9v. brúnn

Jónína Pálmadóttir Marey 5 v. mósótt

Elísabet Eir Steinbjörnsdóttir, Kremi 7 v. leirljós



Fimmgangur opinn flokkur:

Ólafur Magnússon Njörður 8 v. jarpur

Herdís Einarsdóttir Tvinni 6 v. rauðbl.

Vignir Sigurðsson Jaðar 6 v. brúnn

Gunnar Reynisson Kveikur 8 v. rauðskj.

Viðar Bragason Sorró 11 v. grár



Fimmgangur áhugamenn:

Sigríður Lárusdóttir Erla 8 v. brúnskj.

Jóhann Albertsson Safír 6 v. brúnn

Sigríður Ása Guðmundsdóttir Stakur 9 v. jarpur

Þorgeir Jóhannesson Sammynd 12. v. grá

Kjartan Sveinsson Fía 10. v. jörp.

  • 1
Flettingar í dag: 243
Gestir í dag: 24
Flettingar í gær: 1125
Gestir í gær: 95
Samtals flettingar: 434221
Samtals gestir: 51258
Tölur uppfærðar: 27.4.2024 08:24:54

Vafraðu um

Eldra efni

Um hestamannafélagið Neista

Nafn:

Hestamannafélagið Neisti

Afmælisdagur:

1943

Heimilisfang:

540 Blönduós

Staðsetning:

Blönduós

Um:

Hestamannafélagið Neisti hefur sitt aðsetur á Blönduósi, en er félag hestamanna í Austur-Húnavatnssýslu.

Kennitala:

480269-7139

Tenglar

clockhere