Færslur: 2023 Janúar22.01.2023 20:54VetrarstarfiðÆskulýðsstarf Neista fór af stað í gær með opnu húsi í reiðhöll og hesthúsi. Félsgshesthúsið er fullt og þar eru eingöngu hestar fyrir börn og unglinga á námskeiðum.
Skrifað af Selma 09.01.2023 21:15Mót vetrarins
Hér fyrir neðan má sjá dagskrá fyrir mót vetrarins.
Frekari upplýsingar koma þegar nær dregur
# Föstudagur 27.01 - Smalinn
# Laugardagur 25.02 - Þrígangur
# Föstudagur 17.03 - Fjórgangur
# Miðvikudagur 19.04 - Tölt
# Laugardagur 27.05 - Fimmgangur utandyra
# Laugardagur 17.06 - Félagsmót utandyra
- Flokkur verður fyrir unghesta
Þetta verður fjör!
Mótanefnd
Skrifað af Selma 09.01.2023 15:53Íþróttamenn ársins 2022Kjör Íþróttamanns ársins 2022 hjá USAH var með breyttu sniði og var athöfnin nú í Íþróttamiðstöðinni á Blönduósi 29. desember 2022. Þar varð okkar fólk í 2. og 3. sæti en Íþróttamaður ársins var Sigríður Soffía Þorleifsdóttir frá Ungmennafélagi Bólstaðarhlíðarhrepps. Í 2. sæti varð Una Ósk Guðmundsdóttir og í þriðja sæti varð Guðrún Rut Hreiðarsdóttir. Við sama tilefni voru í fyrsta sinn veittar viðurkenningar til ungra og efnilega íþróttamanna hjá USAH sem tilnefnd voru af aðildarfélögum sambandsins. Eftirtalin hlutu viðurkenningar: Elías Már Víðisson, Umf. Bólstaðarhlíðarhrepps, Elísa Bríet Björnsdóttir, Umf Fram, Harpa Katrín Sigurðardóttir, Umf. Geislum, Samúel Ingi Jónsson, Skotf. Markviss, Sigurjón Bjarni Guðmundsson, Umf. Hvöt og Sunna Margrét Ólafsdóttir, Hestamannaf. Neista.
Skrifað af Selma
Flettingar í dag: 243 Gestir í dag: 24 Flettingar í gær: 1125 Gestir í gær: 95 Samtals flettingar: 434221 Samtals gestir: 51258 Tölur uppfærðar: 27.4.2024 08:24:54 |
Vafraðu umEldra efni
Um hestamannafélagið Neista Nafn: Hestamannafélagið NeistiTölvupóstfang: [email protected]Afmælisdagur: 1943Heimilisfang: 540 BlönduósStaðsetning: BlönduósUm: Hestamannafélagið Neisti hefur sitt aðsetur á Blönduósi, en er félag hestamanna í Austur-Húnavatnssýslu.Tenglarclockhere
|
© 2024 123.is | Nýskrá 123.is síðu | Stjórnkerfi 123.is