17.02.2018 10:33Svínavatn 2018Laugardaginn 3. mars verður mótið haldið á Svínavatni í A-Hún. Keppt verður í A og B flokki gæðinga og opnum flokki í tölti. Fyrirkomulag með svipuðu sniði og verið hefur undanfarin ár og verða nánari upplýsingar birtar þegar nær dregur á hestanetmiðlum og á heimasíðu mótsins.
16.02.2018 13:30Ráslistar - dagskráSAH -mótaröðin
Hér kemur dagskrá og ráslisti fyrir kvöldið. Mótið hefst klukkan 19:00. Eftir forkeppni sem er í þeirri röð eins og hér er fyrir neðan verður hlé og síðan úrslit í sömu röð.
Tölt T7 - barnaflokkur
Tölt T7 – áhugamenn
Tölt T7 – opinn
Fjórgangur – börn og unglingar
Fjórgangur – áhugamenn
Fjórgangur – opinn
15.02.2018 13:10Úrslitakvöld í reiðhöllinni SvaðastöðumLaugardaginn 14. apríl verður haldið úrslitamót í reiðhöllinni Svaðastöðum, keppnisrétt hafa efstu knapar í vetrarmótaröðum Neista, Þyts, Skagfirðings og Léttis. Keppt verður í fjórgangi, fimmgangi og tölti, 1. og 2. flokki. Nánar auglýst síðar. Sigurvegurum í fullorðinsflokkum í fjórgangi á morgun býðst að vera fulltrúar SAH-mótaraðarinnar á úrslitakvöldinu. Minnum á að skráningarfrestur í SAH-fjórganginn og T7 er til 20:00 í kvöld, fimmtudag. Skráningar berist á netfangið [email protected] og fram þarf að koma nafn knapa og í hvaða flokki á að keppa, nafn, litur og aldur á hrossi. Skráningargjald í yngri flokkum er kr. 1.500 og kr. 2.000 í öðrum flokkum. Best er að greiða skráningargjöld fyrirfram inn á 307-26-055624, kt. 480269-7139. 11.02.2018 22:47SAH-mótaröðin. Fjórgangur og T7SAH – Mótaröðin. Fjórgangsmót í Reiðhöllinni Arnargerði. Föstudagskvöldið 16. febrúar kl. 19:00 verður Fjórgangur og T7 í Reiðhöllinni Arnargerði. Keppt verður í flokkum 13 ára og yngri, 14 til 17 ára, áhugamannaflokk og opnum flokki. Áskilinn er réttur til að sameina flokka verði skráning takmörkuð. Um er að ræða fyrsta mótið í SAH – mótaröðinni sem styrkt er af SAH afurðum. Í fjórgangi er riðinn einn hringur á hægu tölti, einn hringur á greiðara tölti, einn hringur á brokki, einn hringur á stökki og hálfur á feti. Áður en keppandi hefur keppni má hann ríða hálfan hring þ.e. hefja keppni að sunnanverðu. Keppandi ræður röð gangtegunda en í lok keppni skal hægja niður á fet. Í T7 er riðinn einn hringur á hægu tölti og einn hringur að eigin vali. Skráningar berist á netfangið: [email protected] fyrir kl. 20:00 fimmtudaginn 15. Febrúar. Skráningargjald í yngri flokkum er kr. 1.500 og kr. 2.000 í öðrum flokkum. Fram komi nafn á hrossi, aldur og litur. Skráningargjöld má greiða fyrirfram inn á 0307-26-055624 kt. 480269- 7139. Nefndin. 29.01.2018 13:34Folaldasýning 2018 - Úrslit
Hestfolöld 1. Svarthöfði frá Skagaströnd, brúnskjóttur F: Þristur frá Feti M: Þyrla frá Skagaströnd Rækt. Friðþór Norðkvist Sveinsson Eig. Friðþór Norðkvist og Þorlákur Sigurður Sveinssynir
2. Hringur frá Blönduósi, jarptvístjörnóttur, hringeygður með sokk á afturfæti. F: Fannar frá Blönduósi M: Penta frá Blönduósi Rækt. og eig. Eyjólfur Guðmundsson
3. Fjölnir frá Hæli, brúnn F: Mugison frá Hæli M: Kolfinna frá Blönduósi Rækt. og eig. Jón Kristófer Sigmarsson
4. Drangur frá Steinnesi, rauðstjörnóttur F: Draupnir frá Stuðlum M: Ólga frá Steinnesi Rækt. og eig. Magnús Jósefsson
5. Órói frá Blönduósi, rauðskjóttur F: Órator frá Blönduósi M: Iða frá Blönduósi Rækt. og eig. Guðmundur Sigfússon
6. Gauti frá Geitaskarði, bleikur F: Reyr frá Efri-Fitjum M: Reikistjarna frá Geitaskarði Rækt. og eig. Sigurður Örn Ágústsson og Sigurður Örn E. Levy
Merfolöld 1. Rós frá Blönduósi, rauðskjótt F: Fannar frá Blönduósi M: Kjarnorka frá Blönduósi Rækt. og eig. Eyjólfur Guðmundsson
2. Olga frá Blönduósi, brún F: Órator frá Blönduósi M: Aska frá Stóra-Búrfelli Rækt. og eig. Guðmundur Sigfússon
3. Fantasía frá Hæli, brúnstjörnótt F: Hjari frá Hofi á Höfðaströnd M: Eyvör frá Hæli Rækt. og eig. Jón Kristófer Sigmarsson
4. Ásynja frá Steinnesi, moldótt F: Oddi frá Hafsteinsstöðum M: Sigyn frá Steinnesi Rækt. og eig. Magnús Jósefsson
5. Melodía frá Köldukinn 2, fífilbleik F: Óskasteinn frá Íbishóli M: Mýra frá Ármóti Rækt. og eig. Karen Ósk Guðmundsdóttir
Ungfolar 1. Máni frá Krossum, sótrauður stjörnóttur, f. 2015 F: Bergsteinn frá Akureyri M: Birta frá Dalvík Rækt. og eig. Guðrún Rut Hreiðarsdóttir
2. Nn frá Steinnesi, hvítingi, f. 2016 F: Ljósvíkingur frá Steinnesi M: Albína frá Glaumbæ II Rækt. og eig. Magnús Jósefsson
3. Lager frá Skagaströnd, dökkjarpur, f. 2016 F: Hlynur frá Haukatungu Syðri 1 M: Þökk frá Skagaströnd Rækt. Þorlákur Sigurður Sveinsson Eig. Þorlákur Sigurður Sveinsson og Guðrún Rut Hreiðarsdóttir
4. Töfri frá Steinnesi, rauðstjörnóttur, f. 2016 F: Ölnir frá Akranesi M: Sunna frá Steinnesi Rækt. og eig. Magnús Jósefsson
5. Leifur frá Steinnesi, rauðstjörnóttur, f. 2016 F: Smári frá Steinnesi M: Árdís frá Steinnesi Rækt. og eig. Magnús Jósefsson
Kosningin um álitlegasta folaldið að mati áhorfenda fór þannig að Svarthöfði frá Skagaströnd og Rós frá Blönduósi hlutu jafn mörg atkvæði. Það var því sett í hendur dómarans að skera úr um hvort skildi sigra, niðurstaðan var sú að Rós frá Blönduósi væri álitlegust enda afar fínleg og léttstíg.
Hrossaræktarsamband A-Hún þakkar eigendum og áhorfendum fyrir skemmtilegan dag. 29.01.2018 09:30Reiðnámskeið með Artemisiu Bertus á SauðárkrókiFT norður mun standa fyrir reiðnámskeiði í Svaðastaðahöllinni á Sauðárkróki 10.-11. febrúar næstkomandi. Námskeiðið er opið öllum sem vilja bæta sig og sinn hest. Misa hefur náð frábærum árangri um árabil, bæði á kynbóta- og keppnisbrautinni, auk þess að hafa starfað sem kennari við Hólaskóla. Nefna má að hún stóð uppi sem sigurvegari Meistaradeildarinnar fyrir sunnan 2012, og allir muna eftir frábærum sýningum hennar í gæðingafimi og fjórgangi á hestinum Korgi frá Ingólfshvoli. Síðastliðið sumar sigraði Misa fjórganginn á Íslandsmótinu með yfirburðum með 8,27 í einkunn og þar að auki reið hún til úrslita á heimsmeistaramótinu í Hollandi. Kenndir verða tveir einkatímar laugardag og sunnudag. Verð: Fyrir FT félaga 20.000 Fyrir utanfélagsmenn 25.000 Skráning hjá [email protected] 21.01.2018 21:35Vel heppnuð vinnusýningÞað var vel mætt á vinnusýningu Benna Líndal í reiðhöllinni í gær en rúmlega 70 manns komu til að fylgjast með þjálfunaraðferðum hans. Benni kom með fjögur hross á mismunandi tamningastigum og sýndi okkur aðferðir sem hann notar við vinnu með ung hross og meira tamin hross. Gaman var að fylgjast með samspili knapa og hesta sem einkenndist af léttleika og trausti. Við þökkum Benna kærlega fyrir komuna. Einnig þökkum við áhorfendum fyrir komuna, það var virkilega gaman að fá svona góða mætingu og vonandi gaf þetta tóninn fyrir komandi viðburði.
16.01.2018 11:50Vinnusýning með Benna LíndalMinnum á að Benedikt Líndal, tamningameistari, verður með vinnusýningu í reiðhöllinni laugardaginn 20. janúar klukkan 16:00. Benedikt kemur með nokkur hross og leiðir áhorfendur í gegnum fróðlegt og skemmtilegt vinnuferli. Verð (ath. enginn posi) Hlökkum til að sjá sem flesta ! 12.01.2018 09:42Folaldasýning 2018Nú er komið að foladasýningu 2018 og verður hún með svipuðu sniði og í fyrra. 09.01.2018 08:42Mót vetrarinsHér koma dagsetningar á mótum vetrarins.
16. febrúar - Fjórgangur og T7 10. mars - Ísmót 23. mars - Tölt 6. apríl - Fimmgangur og slaktaumatölt
Nánar auglýst síðar. Mótanefnd Skrifað af Harpa 03.01.2018 18:44Vinnusýningu með Benna Líndal frestað !Vegna forfalla verðum við að fresta vinnusýningu Benna Líndal til 20. janúar. Nánar auglýst síðar. 03.01.2018 11:26Kynningarfundur um æskulýðsstarfiðMinnum á að kynningarfundur um æskulýðsstarf vetrarins verður haldinn á morgun, fimmtudaginn 4. janúar, klukkan 17:00 í reiðhöllinni. Gulla og Nonni frá Hestaleigunni Galsa ætla að koma ef einhverjir hafa áhuga á að leigja hest hjá þeim fyrir námskeiðin. Guðrún Rut fer yfir námskeiðin og æskulýðsnefndin segir frá öðru starfi. Síðasti skráningardagur á námskeiðin er 6. janúar.
Skrifað af Harpa 27.12.2017 08:57Námskeið vetur 2018Í vetur verða eftirfarandi reiðnámskeið í boði hjá Neista. Guðrún Rut Hreiðarsdóttir ætlar að kenna hjá okkur í vetur en hún er menntaður reiðkennari frá Háskólanum á Hólum. Skráning fer fram hjá Guðrúnu á [email protected] eða í síma 695-8766. Síðasti skráningardagur er 6. janúar.
Kynningarfundur um æskulýðsstarfið verður haldinn fimmtudaginn 4. janúar kl. 17:00 í reiðhöllinni. Þar verður farið nánar yfir skipulag vetrarins.
Pollanámskeið – teymdir Lögð verður áhersla á jafnvægi á hestbaki og grunnstjórnun hestsins í gegnum leiki og þrautir. Foreldrar/aðstoðarmenn nemanda teyma undir börnunum. Ætlað fyrir 7 ára og yngri.
Pollanámskeið – ekki teymdir Fyrir þau sem eru tilbúin að stjórna sjálf. Lögð verður áhersla á jafnvægi á hestbaki og stjórnun hestsins í gegnum leik og þrautir. Ætlað fyrir 7 ára og yngri.
Almennt reiðnámskeið 8 – 10 ára Almenn reiðnámskeið fyrir alla krakka. Áhersla lögð á ásetu og stjórnun hestsins og aukið sjálfstæði í umgengni við hestinn. Leikir og þrautir á hestbaki.
Almennt reiðnámskeið 11 – 14 ára Almenn reiðnámskeið fyrir alla krakka 11-14 ára. Áhersla lögð á ásetu og stjórnun hestsins, að þekkja gangtegundir og gangskiptingar. Leikir og þrautir á hestbaki.
Einnig verður boðið upp á kennslu í Knapamerkjum. Knapamerkin eru stigskipt nám sem fela í sér að bæta þekkingu á meðferð, notkun og umhirðu íslenska hestsins á breiðum grunni. Nemendur eru leiddir stig af stigi í takt við getu og áhuga.
Knapamerki 1 - 12 ára og eldri
Knapamerki 2
Knapamerki 3 og 4 Mögulega verða knapamerki 3 og 4 kennd ef áhugi er fyrir hendi. Fjöldi tíma, tímasetningar og verð verður gefið upp að loknum síðasta skráningardegi.
Einka- eða parakennsla fyrir fullorðna Einstaklingsmiðaðir reiðtímar sem fela í sér að aðstoða nemendur í að ná þeim raunhæfu markmiðum sem þeir setja sér með sjálfan sig og sinn hest jafnt byrjendur sem lengra komna.
Einnig er stefnt að því að fá til okkar gestakennara ef áhugi er fyrir hendi og myndi sú kennsla fara fram um helgi. Tvo til þrjá daga í röð.
Nánari upplýsingar um námskeiðin, svo sem tímafjölda og verð, má finna undir flipanum Námskeið vetur 2018 á stikunni hér hægra megin.
Skrifað af Harpa 20.11.2017 18:49Uppskeruhátíð 2017Uppskeruhátíð húnvetnskra bænda og hestamanna var haldin 18. nóvember sl. og eins og fyrri ár voru veitt verðlaun fyrir hesta, kýr og kindur.
Innilega til hamingju með frábæran árangur á árinu.
Stóðhestar 6. vetra Flettingar í dag: 825 Gestir í dag: 252 Flettingar í gær: 1234 Gestir í gær: 398 Samtals flettingar: 444305 Samtals gestir: 53483 Tölur uppfærðar: 9.5.2024 13:31:11 |
Vafraðu umEldra efni
Um hestamannafélagið Neista Nafn: Hestamannafélagið NeistiTölvupóstfang: [email protected]Afmælisdagur: 1943Heimilisfang: 540 BlönduósStaðsetning: BlönduósUm: Hestamannafélagið Neisti hefur sitt aðsetur á Blönduósi, en er félag hestamanna í Austur-Húnavatnssýslu.Tenglarclockhere
|
© 2024 123.is | Nýskrá 123.is síðu | Stjórnkerfi 123.is