12.03.2017 16:54Ísmót vetrarleikar
Laugardaginn 11. Mars fóru fram Vetrarleikar Hestamannafélagsins Neista á Svínavatni. Blíðskaparveður var og skemmtu menn og hestar sér hið besta. Lara Margrét Jónsdóttir keppti í unglingaflokki og hlaut einkunnina 6,66 í tölti
08.03.2017 07:59Ísmót á SvínavatniÁkveðið hefur veri að efna til ísmóts á Svínavatni við Stekkjardal á laugardaginn kemur 11. mars kl. 13:00. Keppt verður í tölti í opnum flokki, flokki áhugamanna og 16 ára og yngri svo sem verið hefur. Riðin verður ein ferð á hægu tölti, tvær ferðir hraðabreytingar og ein ferð á yfirferðartölti. Bæjarkeppni með firmakeppnissniði fer fram að tölti loknu. Skráning berist fyrir kl. 20:00 föstudaginn 10. mars á netfangið [email protected]. Skráningargjöld eru 1.000 kr.
Nefndin. Skrifað af Selmu 05.03.2017 09:26Ísmótinu frestað!Vegna ónógrar þátttöku verður að fresta auglýstu ísmóti á Svínavatni. Nefndin
Skrifað af Selmu 04.03.2017 18:52AðalfundurAðalfundur hestmannafélagins Neista verður fimmtudagskvöldið 9. mars kl. 20:30 Í Reiðhöllinni Arnargerði.
Dagskrá: Venjuleg aðalfundarstörf Hvetum áhugasama um að mæta og koma málefnum sínum á framfæri.
Stjórn hestamannafélagsins Neista Skrifað af Selmu 02.03.2017 23:07Ísmót Neista á SvínavatniÞar sem ís er aftur kominn á Svínavatn hefur verið ákveðið með skömmum fyrirvara að efna til ísmóts á sunnudaginn 5. mars kl. 13:00. Skrifað af Selmu 28.02.2017 08:14Árleg fundarferð um málefni hestamannaSveinn Steinarsson formaður félags hrossabænda og Þorvaldur Kristjánsson ábyrgðarmaður hrossaræktar ferðast um landið
Skrifað af Selmu 27.02.2017 21:29Úrslit töltmótsinsÚrslit mótsins urðu þessi: Unglingaflokkur: 1. Lara Margrét og Keisari 6,7
Áhugamannaflokkur:
1. Berglind og Mirra 6,7
Opinn flokkur: 1. Hörður og Djarfur 6,8 Skrifað af Selmu 20.02.2017 22:02Svínavatni 2017 aflýstNú er aðstæður orðnar þannig að ekki er líklegt að hægt sé halda mótið í vetur. Hefur því verið ákveðið að aflýsa mótinu í ár, en með von um eðlilegt tíðarfar næsta vetur er stefnt á glæsilegt mót á sama stað þann 3. mars 2018. Skrifað af Selmu 20.02.2017 17:03KarlareiðVeður hefur raskað þeirri áætlun að fara í karlareið um Laxárvatn um næstu helgi eins og ætlunin var. Karlareið er því frestað nú um sinn en við sjáum hvað setur og verum tilbúnir ef færi gefst. Nefndin. Skrifað af Selmu 15.02.2017 20:28Töltmót í ReiðhöllinniAth. töltmótið verður á fimmtudag en ekki þriðjudag. Skrifað af Selmu 06.02.2017 13:07KARLAREIÐ!
Áformað er að hafa hefðbundna karlareið Neista þann 25.febrúar n.k. Hugmyndir um reiðleiðir eru ekki fullmótaðar enda hefur veður mikil áhrif á hvert leið liggur. Efst er þó á blaði að ríða um Laxárvatn þannig að hefja ferð í Sauðanesi og leggja þar aftur að landi eftir góða hringferð um vatnið. Þegar nær dregur þá verða frekari upplýsingar hér á heimasíðu Neista. Áhugasamir karlar, allir velkomnir, tilkynni þátttöku til Páls Þórðarsonar í síma 848 4284 eða Kristjáns Þorbjörnssonar í síma 892 1713. Skrifað af Selmu 04.02.2017 22:30Reiðnámskeiðin byrja á mánudagReiðnámskeið barna og unglinga verða á mánudögum og miðvikudögum og skiptast svona:
17:15 – 17:45 Þórdís
Hugrún
Miðvikudagar, kennari Kristín 17:00 – 17:30 Þórunn Marta
18:30-19:00 Kristín Erla Skrifað af Selmu 04.02.2017 10:06Ísmótið Svínavatn 2017Laugardaginn 4. mars verður mótið haldið á Svínavatni í A-Hún. Keppt verður í A og B flokki gæðinga og opnum flokki í tölti. Fyrirkomulag með svipuðu sniði og verið hefur undanfarin ár og verða nánari upplýsingar birtar þegar nær dregur á hestanetmiðlum og á heimasíðu mótsins. Vegleg peningaverðlaun verða veitt fyrir þrjú efstu sæti í hverjum flokki. Eins og venjulega verður gott hljóðkerfi á staðnum og dagskránni útvarpað. Skrifað af Selmu 26.01.2017 21:48Reiðnámskeið fyrir börn og unglinga
Æskulýðsstarfið er að fara af stað með reiðnámskeiðum fyrir börn og unglinga. Skráningar á [email protected]. Bjóðum til fundar í Reiðhöllinni n.k. sunnudag kl 13. Æskulýðsnefndin Skrifað af Selmu 11.01.2017 08:38Heyefnagreiningar fyrir hestamennEfnagreining ehf kynnir nýjungar í niðurstöðum fyrir hestamenn en á niðurstöðublaðinu er reiknað út fóðurgjöf kg hey á dag á hest miðað við þitt hey. Í viðhengi má finna sýnishorn af niðurstöðublaðinu og nánari upplýsingar um heyefnagreiningar fyrir hestamenn. Skrifað af Selmu Flettingar í dag: 2930 Gestir í dag: 303 Flettingar í gær: 1234 Gestir í gær: 398 Samtals flettingar: 446410 Samtals gestir: 53534 Tölur uppfærðar: 9.5.2024 16:46:26 |
Vafraðu umEldra efni
Um hestamannafélagið Neista Nafn: Hestamannafélagið NeistiTölvupóstfang: [email protected]Afmælisdagur: 1943Heimilisfang: 540 BlönduósStaðsetning: BlönduósUm: Hestamannafélagið Neisti hefur sitt aðsetur á Blönduósi, en er félag hestamanna í Austur-Húnavatnssýslu.Tenglarclockhere
|
© 2024 123.is | Nýskrá 123.is síðu | Stjórnkerfi 123.is