Minnum á að kynningarfundur um æskulýðsstarf vetrarins verður haldinn á morgun, fimmtudaginn 4. janúar, klukkan 17:00 í reiðhöllinni. Gulla og Nonni frá Hestaleigunni Galsa ætla að koma ef einhverjir hafa áhuga á að leigja hest hjá þeim fyrir námskeiðin. Guðrún Rut fer yfir námskeiðin og æskulýðsnefndin segir frá öðru starfi.
Síðasti skráningardagur á námskeiðin er 6. janúar.