Hestamannafélagið Geysir mun halda
Íslandsmót Yngriflokka á Gaddstaðaflötum við Hellu dagana 25-29 júlí
2012. Mótið er öllum opið sem eru 21 árs og yngri. Keppt verður í öllum
hefðbundnum flokkum hestaíþróttana og aldursskipt í barnaflokk,
unglingaflokk og ungmennaflokk eins og venjan er. Nú er um að gera að
taka þátt og ná sér í dýrmæta keppnisreynslu á einu stærsta íþróttamóti
ársins. Nánari upplýsingar um skráningu, dagskrá og aðrar upplýsingar um
mótið munu koma þegar nær dregur
Íslandsmóti.
Fjölmennum og hittumst hress og kát á Gaddstaðaflötum í lok júlí.
Aðalstyrktaraðilar mótsins eru:
Margrétarhof ehf
Lúðvík Bergmann(Búaðföng, Bakkakot, Foss og Hungurfit)
Mótanefndin