03.06.2012 22:32UppskeruhátíðÞað var aldeilis flott veður sem æskulýðurinn og áhangendur þeirra fengu í dag þegar þau héldu uppskeruhátíðina sína. Það var góður hópur sem mætti við Reiðhöllina kl. 14. með hesta sína og riðu upp í Kúagirðingu undir fararstjórn Jóns Ragnars Gíslasonar hjá Hestaleigunni Galsa. Frábær ferð og gaman að sjá hve dugleg þau eru og vel ríðandi. Eftir reiðtúrinn var grillað og skírteini afhent og öll fengu þau gjöf fyrir hve frábærlega þau eru búin að standa sig í vetur. Flottir krakkar, takk takk fyrir veturinn og sjáumst vonandi aftur næsta vetur. Eins og gengur gátu ekki allir krakkarnir mætt í dag en á námskeiðum hjá Neista í vetur voru 38 krakkar, 8 af þeim voru í knapamerkjum og luku þau prófum úr knapamerkjum 1, 2 og 3. Æskulýðsnefnd Skrifað af selma Flettingar í dag: 2982 Gestir í dag: 315 Flettingar í gær: 1234 Gestir í gær: 398 Samtals flettingar: 446462 Samtals gestir: 53546 Tölur uppfærðar: 9.5.2024 17:50:52 |
Vafraðu umEldra efni
Um hestamannafélagið Neista Nafn: Hestamannafélagið NeistiTölvupóstfang: [email protected]Afmælisdagur: 1943Heimilisfang: 540 BlönduósStaðsetning: BlönduósUm: Hestamannafélagið Neisti hefur sitt aðsetur á Blönduósi, en er félag hestamanna í Austur-Húnavatnssýslu.Tenglarclockhere
|
© 2024 123.is | Nýskrá 123.is síðu | Stjórnkerfi 123.is