Ulrike Brilling er búin að læra nálastungumeðferð fyrir dýr og núna vantar henni "sjúklinga" sem gætu haft gott af þannig meðferð, til að fá meira
reynslu.
Hún er búin að meðhöndla sín eigin dýr og hefur það gengið vonum framar
og árangurinn verið frábær.
Nálastungumeðferð virkar ein sér við ýmsum kvillum en líka sem
viðbótameðferð og getur líka verið notuð fyrirbyggjandi. Hún er t.d.
notuð til að auka blóðflæði, bæta ofnæmiskerfið eða lina verki og getur
þannig bætt hreyfigetu og flýtt fyrir bata, svo eitthvað sé nefnt. Það góða er að engar aukaverkanir fygja henni.
Meðferðin kostar ekki neitt eins og er og ef þið hafið áhuga á að prófa hana
endilega hafiði samband við Ulrike í síma 8699626.