24.05.2009 21:38Úrtaka fyrir Fjórðungsmót og félagsmót NeistaLaugardaginn 13.júní kl. 10.00 verður félagsmót Neista haldið á Blönduósvelli og verður það einnig úrtaka
fyrir Fjórðungsmót. Neisti á rétt á að senda 4 hesta
til keppni á Fjórðungsmóti í hverjum flokki. Keppt verður í A og B
flokki gæðinga, flokki barna, unglinga og ungmenna. Skráningar á mótið skulu
berast á netfangið [email protected] í síðasta lagi kl. 24.00
þriðjudagskvöld 9. júní. Skráningargjald er kr. 1.500 fyrir hverja
skráningu en 1.000 fyrir börn. Við skráningu þarf að gefa upp IS númer hests og GSM síma þess er
skráir. Hestar þurfa að vera grunnskráðir i World Feng. Skráningargjald
leggist inn á reikningsnúmer 0307-26-055624, kt. 480269-7139 sama dag og skráð er og þar þarf að koma fram fyrir hvaða hesta er verið að borga og senda kvittun á áðurnefnt netfang. Nánari dagskrá auglýst síðar. Mótanefndin Skrifað af selma Flettingar í dag: 444 Gestir í dag: 145 Flettingar í gær: 1234 Gestir í gær: 398 Samtals flettingar: 443924 Samtals gestir: 53376 Tölur uppfærðar: 9.5.2024 06:34:46 |
Vafraðu umEldra efni
Um hestamannafélagið Neista Nafn: Hestamannafélagið NeistiTölvupóstfang: [email protected]Afmælisdagur: 1943Heimilisfang: 540 BlönduósStaðsetning: BlönduósUm: Hestamannafélagið Neisti hefur sitt aðsetur á Blönduósi, en er félag hestamanna í Austur-Húnavatnssýslu.Tenglarclockhere
|
© 2024 123.is | Nýskrá 123.is síðu | Stjórnkerfi 123.is