Það voru nokkuð margar ferðirnar sem Fluga, Pjakkur (heitir eitthvað annað) og Epli fóru um túnið norðan við Leikskólann Barnabæ í morgun þegar þær Neistakonur Silla, Selma og Angela mættu með þau þar og krakkarnir fengu að fara á hestbak. Allir sem vildu fóru hring á túninu norðan við leikskólann og þótti flestum þetta afar gaman, sumum leist samt ekki á þessar stóru skepnur og vildu ekki fara á bak en klöppuðu þeim pínulítið. Var þetta skemmtileg heimsókn bæði fyrir börnin og fullorðna. Takk fyrir skemmtunina og takk fyrir lán á hestum, kerru og bíl. Myndir eru fengnar af vef leikskólans. .