03.12.2007 20:45Vetrarstarf Neista hefst með opnum félagsfundi 4. desember
Vetrarstarf Neista hefst með opnum félagsfundi 4. desember Segja má að veturinn hjá hestamannafélaginu hafi byrjað með pompi og prakt s.l. laugardag þ. 1. desember þegar árshátíð búgreinafélaga og Neista var haldin í félagsheimilinu á Blönduósi. Knapa árssins, Ólafi Magnússyni frá Sveinsstöðum var veitt viðurkenningu fyrir frábæran árangur í keppni á árinu og Höskuldur B. Erlingsson tók á móti viðurkenningu fyrir gerð heimasiðu félagsins, www.neisti.net, og umsjón með henni. Margt er á döfinni hjá Neista, námskeið, sýningar, unglingastarf og fleira og verður haldinn stór almennur félagsfundur þriðjudaginn 4. desember kl. 20.30 í reiðhöllinni á Blönduósi. Þar verður kynnt dagskrá vetrar, nefndarmenn verða á staðnum til að svara spurningum og mun vonandi spinnast lífleg umræða um málefni hestamennskunnar yfir kaffibolla og meðlæti. Flettingar í dag: 560 Gestir í dag: 185 Flettingar í gær: 1234 Gestir í gær: 398 Samtals flettingar: 444040 Samtals gestir: 53416 Tölur uppfærðar: 9.5.2024 08:23:52 |
Vafraðu umEldra efni
Um hestamannafélagið Neista Nafn: Hestamannafélagið NeistiTölvupóstfang: [email protected]Afmælisdagur: 1943Heimilisfang: 540 BlönduósStaðsetning: BlönduósUm: Hestamannafélagið Neisti hefur sitt aðsetur á Blönduósi, en er félag hestamanna í Austur-Húnavatnssýslu.Tenglarclockhere
|
© 2024 123.is | Nýskrá 123.is síðu | Stjórnkerfi 123.is